Fjögur bréf frá ungum ævintýramanni Henrý A. Hálfdansson frumkvöðull Sjómannadagsins var um tvítugsaldur í siglingum víða um heim á árunum 1923- 1924. Fjögur bréfsem hér birtast varpa nokkru Ijósi á ævintýri hans Fyrir atbeina Hálfdáns Heynryssonar bárust Sjómannadagsblaðinu nýlega í hendur fjögur fróðleg og skemmtileg bréf sem faðir hans, Henrý A. Háldansson, ritaði um tvítugsaldur, en hann var þá í siglingum víða um heim og lá leið hans allt frá Washingtonfylki í norðvesturhluta Bandaríkjanna til Yokohama í Japan. Henry var fæddur þann 4. júlí 1904 og fór ungur á sjó. Aðeins 14 ára réðst hann á danskt saltflutningaskip sem sigldi til Spánar. Eftir það var hann í nokkur ár á bátum frá Isafirði en sigl- di 19 ára gamall til Kaupmannahafnar og hugðist komast á sjóliðsforingja- skóla eins og ljóst verður af bréfunum hér á eftir. En hann skorti tilskilinn undirbúning til þess að komast á skólann og réðst hann þá á nýtt, dan- Henry A. Hálfdansson háseti á bandariskri skonnortu við Alaska. Hann er parna tvi- tugur að aldri. skt flutningaskip sem flytja skyldi trjávið til Japan, en þar var mikið endurreisnarstarf í gangi vegna hinna ógurlegu og mannskæðu jarðskjálfta þar 1923. Að þessum siglingum loknum strauk Henry af skipinu og stundaði síldveiðar við Alaska um tíma. Þegar hann kom til Seattle á ný hugðist hann setjast að í Bandaríkjunum og sótti skóla í ensku o.fl. af þeim sökum um tíma... En umsókn hans mun hafa strandað á því að til þess að fá innflytjendaleyfi varð viðkomandi að hafa verið þrjú ár í landinu. Þar með var Henry neitað um græna kortið" svonefnda og ekki nóg með það: Hann var fluttur í fang- elsi á hinni frægu Ellis Island utan við New York og látinn bíða þar brott- flutnings frá Bandaríkjunum. Lengi var til mynd af Manhattan sem han" teiknaði út um fangelsisgluggann e hún er nú því miður glötuð. Heirri kominn gerðist hann loftskeytamaðu og var um árabil loftskeytamaður togurum, en réðst árið 1944 Slysavarnafélagsins þar sem haf vann sitt langa og farsæla starf í þaS sjómanna til dauðadags. En skemmtileg og fróðleg eru þesS bréf frá manninum sem seinna va Til frumkvöðull Sjómannadagsins. glöggvunar á því fólki sem hann skO ar skal getið um að móðir hans ^a Þórkatla Þorkelsdóttir í Hnífsoa > Björn er fósturfaðir hans Bj°r Friðsteinsson í Hnífsdal (fórst á ve bátnum Trausta á Siglufirði 192o)> e tvö síðustu bréfin ritar hann fra?11 sinni Guðrúnu Jónsdóttur í Hnírsda ¦ 100 SJÓMANNADAGSBI