Björgunarbáturinn Hannes Þ. Hafstein hefur þegar sinnt á sjöunda tug útkalla Sjómannadagsblaðið ræddi við fjóra félaga í björgunarsveitinni Sigurvon um reynsluna af skipinu Fjórir ábafnarmenn á Hannesi Þ. Hafstein sem rddu við ritstjóra Sjómannadagsblaðsins. Frá vinstri: Sigurður Guðjónsson alt muligt mand" Arni Sigurpálsson skipstjóri, Ragnar Kristjánsson vélstjóri og Sveinn Einarsson stýrimaður. (Ljósm. Sjómannadagsbl./AM) Hannes Þ. Hafitein er fullkomnasti björgunarbátur okkar að frátöldum varðskipunum. Koma bans til landsins frá Þýskalandi í apríl 1993 vakti mikla athygli, því þótt báturinn væri fenginn notaður er hönnun hans og búnaður eins og helst verður á kosið. Má geta þess að þegar skipið var smíðað var talið að það væri best búni björgunarbátur heims. En til þessa hefur lítið verið um bátinn fjallað í Ijósi þeirrar reynslu sem af honum erfengin á tveimur árum. Þar er afmörgu að taka. Munfstum kunnugt að Hannes Þ. Hafitein hefurþegar sinnt á sjöunda tug útkalla, sem mörg hafa krafist mikils afskipinu ogþá ekki síður áhöfn þess. Ritstjóri Sjómannadags- blaðsins brá sér suður í Sandgerði fyrir nokkru og tók fióra áhafharmenn tali. Voru það þeir Arni Sigurpálsson skip- stjóri, Ragnar Kristjánsson vélstjóri, Sveinn Einarsson stýrimaður og Sigurður Guðjónsson sem kallar sig alt muligt"-manninn í hópnum. Fyrst beinum við til þeirra spurningu um aðdragandann að komu skipsins. Aðdragandinn að komu skipsins er sa að við í Sigurvon og reyndar flein sveitir innan SVFI vorum búnir ao leita nokkuð lengi að notuðu björgun- arskipi" segja þeir félagar. Við vorum búnir að vera hér með harðbotna björgunarbát, Sæbjörgu, frá árinu 1985, en hún var einn fjögurra slíkra björgunarbáta sem komu til landsins það ár. Bátarnir voru fengnir til reynslu, því bátar af þessari gerð höfðu ekki verið hér áður. Því miður sýndi sig skjótlega að báturinn var ekki nógu stór, vegna þess hvernig aðstæður eru hér á þessu svæði. Við vissum að við réðum aldrei við að kaupa nýjan bát og einbeittum við okkur því að notuðum bátum, eins og ég sagði. Við höfðum leitað víða og þar á meðal í Bretlandi, Banda- ríkjunum, Þýskalandi og fleiri lönd- um. En leitin gekk seint og ekki sist vegna þess að slíkir bátar voru ekki a lausu. Við gáfumst þó ekki upp þar sem við töldum víst að einhvern tima hlytu bátar að losna." Skriður kemst á málin Ef til vill réði það úrslitum um aö skriður komst á málin að 1992 fórst bátur hér utan við Sandgerði. Fórum við út á Sæbjörginni, en hún fékk á sig hnút og skemmdist: Höggvarna- slöngurnar rifnuðu af og varð okkur þá ljóst að við svo ófullnægjandi taelö gátum við ekki unað. Því var hafist handa af endurnýjuðum krafti við ao hafa uppi á báti og leituðum við ti Hannesar Þ. Hafstein. Þótt hann væri þá hættur sem framkvæmdastjori 112 SJÓMAN.NADAGSBLAgíS