SVFÍ var hann allra manna kunnug- astur öllu sem viðvék björgunarbátum erlendis og skipti liðsinni hans megin- máli. Fyrir okkar orð kannaði hann þetta og komst að því að bátur var að losna í Cuxhaven í Þýskalandi. Er ekki að orðlengja það að SVFI var boðinn báturinn og fögnuðu menn því auð- vitað mjög. Miklu skipti að við fengum bátinn á einstökum kjörum: Aðeins málamyndaverð var greitt fyrir hann, eða ein milljón króna - og ekki var nóg með að við fengjum bátinn, neldur fylgdi honum mjög mikið af varahlutum - þar á meðal ný vél." Aðstæður réðu úrslitum um staðsetninguna Senn var tekið að ræða væntanlega staðsetningu bátsins, því ekki var sjálfgefið að hann kæmi hingað til Sandgerðis, þar sem víðar er góðra björgunarbáta þörf. Björgunarbáta, þótt þeir væru ófullkomnari, var þá að hnna hér í Sandgerði, í Reykjavík og í Hafnarfirði, auk þess sem þyrlur eru staðsettar á svæðinu. Hlutu því veru- legar umræður að verða um staðsetn- 'nguna í stjórn SVFI. Kannaðar voru skýrslur um fjölda sjóslysa hér og þar á 'andinu og leitað álits aðila sem höfðu skoðað þessi mál. Kom þá í ljós - sem margir þóttust vita - að hér var versta eða hættumesta svæðið, enda mest skipaumferð hér á illviðrasamasta nluta ársins. Því varð það úr að akveðið var að staðsetja bátinn hér - og kom hann til Sandgerðis 3. apríl 1993" 52 vatnsþétt hólf Björgunarbáturinn Hannes Þ. Hafstein er smíðaður 1965, en er arburðaskip - til dæmis er sama skrokklag notað við smíði nýrra °Jörgunarbáta enn. Svo gefin sé nokkur lýsing á honum þá er hann '6.6 lestir að stærð og 26.6 metrar að engd. Svo við víkjum að fleiri tækni- Siggi Guðjóns." Bátinn má sjósetja á aðeins einni mínútu, enda handtök áhafnarinnar legum atriðum er skylt að geta um að honum er skipt niður í 52 vatnsþétt hólf og eru því allar síður tvöfaldar, þótt að vísu séu olíutankar í hluta af þeim. En aðallega eru þetta lofttankar og í botninum eru lofttankar einnig. Er því ljóst að nokkuð má ganga á áður en báturinn sekkur! Þess eru líka dæmi erlendis að bátar af þessu tagi hafi farið heila veltu en flotið eftir sem áður. Báturinn er búinn þrem díeselvélum af gerðinni Maybach/Merceses Benz sem samtals eru 2400 hestöfl. Tvær þeirra eru 525 hestöfl hvor og eru þær keyrðar að öllu jöfnu, en þriðja vélin er 1350 hestöfl. Hún er gangsett þegar mikið liggur við. Mest höfum við náð 20 mílna ferð, en á reynslusiglingunni er báturinn sagður hafa náð 24.6 mílum. Gífurlegt öryggi er í því fólgið að hafa slíkan vélakost, því þótt ein vélin bili er nóg afl eftir samt. Þá er hagkvæmni í því fólgin að vanalega er aðeins keyrt á tveimur minni vélunum eins og við gátum um. Á bátnum eru líka þrjár skrúfur og þrjú stýrisblöð. Skrúfurnar geta unnið hver á móti annarri sem veldur því að báturinn er mjög lipur og snöggur í hreyfingum. Um siglingabúnað er það að segja að hér um borð er lítil millibylgjustöð, fjórar VHF stöðvar og VHF mið- unarstöð. Enn fremur erum við með Maxi-siglingatölvu sem við settum í bátinn þegar hann kom, svo og nýjan 72 mílna radar af Koden-gerð. Sjálfstýring er auðvitað í bátnum og tvö GBS-staðsetningartæki með leið- réttingu. Bátnum má stjórna jafnt úr efri sem neðri brú, þótt vissulega sé honum oftast stjórnað úr efri brúnni þar sem betur sést yfir." Sjósetning á einni mínútu Enn er ótalið eitt veigamesta atriðið, en það er að við höfum um borð lítinn björgunarvélbát sem aðeins tekur eina mínútu að sjósetja. Hann er mjög hagkvæmur, bæði þegar sigla þarf grunnt eða fara í land og til þess að fara í milli skipa. I honum er 100 hestafla vél og nær hann 10-12 mílna ferð og hentar meðal annars vel til að draga minni báta. Hann er búinn Hannes Þ. Hafstein á fullri ferð. í reynslusiglingunni náði hann 24.6 mílum. (Ljósm. Sigurvon) -5JÖMANNADAGSBLAÐIÐ 113