Báturinn liggur hér við sérstaka brygg- ju sem byggð var fyrir hann og til stendur að stækka. Mun hún einnig nýtast mörgum smábátum hér í Sandgerði þegar tímar líða fram. Bærinn aðstoðaði okkur við byggingu hennar en við lögðum líka fram vinnu á móti." Hér með þökkum við þeim fjórmenn- ingunum fyrir ágætar viðtökur. Gesturinn lítur inn í hina reisulegu björgunarstöð og að endingu hverfum við til gamla tímans þegar Sigurður Guðjónsson fylgir blaðamanni út í skýlið þar sem elsti báturinn, Þorsteinn, er geymdur. Hann er vottur upphafs þróttmikillar starfsemi sem stöðugt er að eflast öllum almenningi og þó einkum sjómönnum til hella. Við óskum Sigurvon og félögum hennar farsældar og áframhaldandi gengis. Atli Magnússon Vinir og samstarfsmenn til marrgra ára Hannes og Kapt. Uwe Klein, framkvæmdastjóri þýska björgunarbátafélagsins. Kapt. Klein var staddur hérlendis í nóv. s.l. og sat þá boð bjarstjórnar Sandgerðis, svd. og bjsv. Sigurvonar. Lét hann í Ijós mikla ánægju um aðstöðu bátsins viðflotbryggjuna nýju, umhirðu hans og nýjan tækjabúnað. Sendurn öllum sjómönnum árnafaróskir á hátíðisdegi þeirra Þórsnes h.f. útgerð og fiskvinnsla Reitavegi 14-16, Stykkishólmi Sími: 438 1378 - 438 1473 -51ÖMANNADAGSBLADIÐ 119