Ævintýralegur eltingaleikur við landhelgisbrjóta Fyrir réttum 40 árum eða sunnudaginn 3. júlí 1955 var belgíski togarinn Van Dyck 0-298 tekinn að meintum ólög- legum veiðum austan við Ingólfshöfða fyrir samvinnu þriggja flugvéla og varð- skips. Takan og eftirfórin tók langan tíma og endaði með því að varðskipið Þór kom með togarann til Reykjavíkur þar sem skipstjóri togarans var sóttur til saka og dæmdur að íslenskum lögum. Eftirfarandi frásögn skráði Guð- mundur Gíslason Hagalín rithöf- undur eftir Garðari Pálssyni 1. stýri- manni á varðskipinu Ægi skömmu eftir að atburðirnir áttu sér stað: Daginn sem varðskipið kom með togarann til Reykjavíkur" segir Guðmundur í upphafi skrásetningar sinnar, hitti ég á götu Garðar Pálsson, sem nú er fyrsti stýrimaður á varðskip- inu Ægi. Hann er gamall vinur minn frá Isafirði, var tíður gestur í Bókasafni Isafjarðar og nemandi minn í bók- menntasögu og notkun bókasafna í Gagnfræðaskóla Isafjarðar. - Hann er sonur Páls Hannessonar skipstjóra, en Páll er Arnfirðingur í móðurkyn og af sömu ætt og þeir skipstjórarnir Sigurður Símonarson og Markús Bjarnason fyrsti skólastjóri Stýri- mannaskólans í Reykjavík, en báðir gerðust þeir forystumenn um þil- skipasjómennsku hér syðra. Garðar er skyldur Markúsi Bjarnasyni bæði í föður- og móðurætt. Móðir Markúsar Bjarnasonar var langömmusystir móður Garðars. Ég tók Garðar Pálsson tali og vék að töku togarans, enda hafði Garðar verið aðalfulltrúi Landhelgisgæslunnar í flugvél þeirri sem lengst sveif yfir togaranum. Þar kom máli okkar að ég bað Garðar að lofa mér að skrifa eftir honum frásögn af töku togarans - og kvað hann það velkomið, og síðan skráði ég eftir Garðari þátt sem ég nefndi I lofti og á legi. Ég fékk einnig að skrifa eftir honum frásögn af viðureign við rúss- nesk síldveiðiskip, sem tekin voru í landhelgi fyrir fáum árum, og var þar aðstaða lagavarðanna ærnum frum- stæðari en þegar þreytt var við hinn belgíska þrjót í þremur flugvélum og á vel búnu varðskipi, sem skríður allt upp í 18 sjómílur. Frásögnina af töku Rússanna kallaði ég Mikið má ef vill. (Þess skal getið að þessi spennandi fráögn birtist í Sjómannadagsblaðinu á fyrra ári - innsk.) í lofti og á legi Klukkan rúmlega 11 fyrir hádegi sunnudaginn 3. júlí 1955 var farið í gæsluflug frá Reykjavík á flugvélinni Glófaxa, sem er eign Flugfélags íslands. Yfirmaður í flugvélinni aí hálfu Landhelgisgæslunnar var Guo- mundur Kjærnested og honum til að- stoðar var Erling Magnússon. Guð- mundur starfar eingöngu að flug- gæslu, en Erling er annar stýrimaður a varðskipinu Ægi. Flugstjóri var Pétur Pétursson og aðstoðarflugmaður Olar- ur Indriðason. Flugvélin flaug austur með landi og Van Dyck að veiðum - sem sjá má eru togvírarnir úti. 122 SJÓMANNADAGSBLAgíg-