Að loknu samtalinu fór Pétur Sigurðsson til fundar við forseta Islands, sagði honum fréttirnar, kvað Van Dyck hafa komið til sögunnar þessu sinni á ekki sem heppilegustum tíma, þar eð eini möguleikinn á sam- fundum við þennan gamla kunningja Landhelgisgæslunnar mundi sá að Þór færi í austurveg. Forseti sagði þegar í stað að sjálfsagt væri að leysa Þór undan öllum skyldum við sig og mundu þau forsetahjónin fara flug- leiðis til Reykjavíkur." Þór lætur úr höfn - Snæfaxi leysir Glófaxa af hólmi Forstjórinn þakkaði forseta Islands og fór nú til fundar við skipherrann á Þór, Eirík Kristófersson, og tjáði honum hvað nú væri í efni. Eiríkur er Barðstrendingur, fæddur á Brekkuvelli á Barðaströnd árið 1892. Hann varð snemma sjómaður, tók skipstjórapróf árið 1918 og hefur verið skipherra á Eiríkur Kristófersson skipherra. varðbátum og varðskipum ríkisins síðan 1926. Hann hefur háð marga hríð við landhelgisbrjóta, stundum á lélegum fleytum, þótt búnar hafi þær verið fallbyssu. Eiríkur er mikill og góður sjómaður, úrræðagóður kjark- maður og skyldurækinn mjög. Brosti hann í kamp þegar hann heyrði hvað til stóð og skyldu nú leystar land- festar. En klukkan hálffjögur hafði Glófaxi á ný samband við Pétur forstjóra. Var honum tjáð að trú- naðarmenn hans í flugvélinni hefðu gert nýjar staðarákvarðanir sem staðfestu fyrri mælingar þeirra, og væru togararnir enn að veiðum í land- helgi. En nú væri svo mjög að þrotum komið eldsneyti flugvélarinnar að nauðsynlegt væri að önnur flugvél kæmi og tæki við gæslunni eins fljótt og auðið væri. Pétur Sigurðsson náði nú í samband við Reykjavík. Talaði hann við Gunnar Bergsteinsson, sem er sjómælingamaður og starfsmaður Landhelgisgæslunnar. Forstjórinn tjáði honum málavöxtu og fól honurn að fá aðra flugvél til að taka við af Glófaxa. Klukkan um fjögur lét Þór úr höfn » Vestmannaeyjum og stóðu þeir báðir á Þór leggur úr höfn. 124 SJÓMANNADAGSBLAÐlP