stjórnpalli, skipherrann og forstjórinn. Veður var hvasst af suðaustri, níu vindstig og sjór nokkuð úfinn. En Þór er gott sjóskip, klauf knálega rismiklar öldurnar og stefndi í austurveg. Ekki skilaði honum þó ýkjafljótt gegn stormi og sjóum, enda varð mjög að draga af vélunum, þótt sterkur sé byrðingurinn og vel vandað til alls sem er ofanþilja. Nú er að segja frá Gunnari Berg- steinssyni. Hann vék þegar að símanum og freistaði að ná í þá menn Landhelgisgæslunnar sem voru á lausum kjala. En honum tókst ekki að hafa uppi á þessum mönnum, enda var þetta á sunnudegi. Hann vissi að Ægir var í heimahöfn og hringdi til Garðars Pálssonar, sem er - eins og áður hefur verið getið - fyrsti stýri- maður á Ægi. Gunnar sagði honum hversu ástatt væri og bað hann að vera trúnaðarmann Landhelgisgæslunnar í flugvél sem ætti að leysa Glófaxa af verðinum. Garðar kvaðst geta farið og tók þegar að týgja sig. Skömmu síðar hringdi Gunnar aftur og kvaðst hafa fengið Gunnar Ólafsson, fyrsta stýri- mann á mælingaskipinu Tý til að vera Garðari til aðstoðar. Garðar hringdi á bifreið og hélt síðan að heiman. Hann kom við hjá Gunnari Ólafssyni og því næst var ekið suður á flugvöll. Þar beið flugvélin Snæfaxi, albúin til farar. I henni voru tveir menn, flugstjórinn, Aðalbjörn Kristbjarnarson, og að- stoðarmaður hans, Sigurður Haukdal. Hugvélin lyfti sér til flugs klukkan hálffimm og flaug austur yfir Reykjanessfjallgarð og út yfir sjó hjá Eyrarbakka. Síðan var flogið austur rneð ströndinni. Vindur var allhvass af suðaustri, en storminn lægði meir og meir eftir því sem austar dró. Eftir þriggja stundarfjórðunga flug sveif Snæfaxi þar yfir sem Þór klauf öldurnar með hvítan foss fyrir stafni °g bógum. Var það suður af GarSar Pálsson var trúnaðarmaður Landhelgisgæslunnar um borð t Snfaxa. Drangshlíðarfjalli, sem er vestan við Skógarfoss. Þá er klukkan var hálfsex höfðu þeir Garðar samband við áhöfn- ina á Glófaxa. Hún sagði þeim einkennisbókstafi togaranna sem brodegir voru, og þegar Snæfaxi kom í sjónmál flaug Glófaxi yfir skip sökudólganna til þess að sýna Snæfaxamönnum sem greinilegast hvar þau væru. Klukkan sex flaug Snæfaxi yfir Van Dyck og fimm mín- útum síðar yfir skipið sem merkt var 0-294. Síðan kvaddi Glófaxi og hélt heimleiðis. Glófaxi lenti á Reykjavíkurflugvelli kl. 19.15" Van Dyck leggur á flótta Þeir Garðar og Gunnar mældu nú Hér hefur Van Dyck reynt að breiða yfir nafn og númer en með litlum árangri. SJÓMANNADAGSBLADIÐ 125