Grunnlinustoðir Grunnlinut Fiskveiðitokmörk forstjórinn að verða við beiðni skip- stjórans, ef það kynni að leiða til þess að ekki þyrfti að beita hann hörku. Sólfaxa var leyft að halda heim þegar klukkan var rúmlega þrjú og lenti hann á Reykjavíkurflugvelli rúmu kortéri fyrir fimm. En Þór hélt vörð í námunda við Van Dyck, og í tog- aranum voru á verði stýrimennirnir Haraldur Björnsson og Kristján Sveinsson. Klukkan á tíunda tímanum um morguninn náði skipstjórinn sam- bandi við útgerðarstjórann, og mun sá hafa sagt honum að ekki mundi honum sagt að orðið mundi verða við tilmælum skipstjórans, ef hann lofaði því á móti að fylgjast mótþróalaust með varðskipinu til Reykjavíkur. Hann gaf það loforð og síðan sótti hann skipsskjölin. Bátur frá Þór kom því næst að togaranum og sté skip- stjóri ofaní hann og var fluttur til móts við Pétur forstjóra og Eirík skipherra. Skipstjóri var rólegur og kurteis og afhenti skipsskjölin, og var honum formlega tilkynnt að hann væri sakaður um landhelgisbrot - og að með hann og skip hans yrði farið til Reykjavíkur. Hann baðst þess að siglt annað ráð vænna en hlýða verði hinna íslensku laga, því að nú tjáði skip- stjórinn stýrimönnunum að hann væri til í að fara yfir í Þór með skipsskjölin, ef hann fengi loforð um að fá að fara aftur yfir í skip sitt. Fyrsti stýrimaður talaði við yfirboðara sína og var væri utan við landhelgislínuna. Honum var gert skiljanlegt að sú bón hans væri allfáránleg, þar sem Reykjavík væri vitaskuld innan en ekki utan þeirrar línu. Lét hann sér þá segjast og lofaði á ný möglunarlaust að gera enga tilraun til mótþróa ef honum yrði leyft að vera á skipi sínu á leiðinni vestur eftir. Hann var síðan fluttur yfir í togarann. Klukkan tíu á mánudagsmorgun héldu bæði skipin af stað og gerðist ekkert sögulegt á leiðinni til Reykjavíkur, en þangað kom Þór með þursinn klukkan átta að morgni þriðjudagsins. Klukkan tíu hófust réttarhöld hjá sakadómara. Skipstjóri viðurkenndi brot sitt, enda lágu fyrir mjög skýlausar sannanir. Þó að Van Dyck hefði áður verið staðinn að veiðum í landhelgi - og það oftar en einu sinni - var þetta fyrsta brot þessa skipstjóra. Var hann dæmdur í sjötíu og fjögur þúsund króna sekt og afli var gerður upptækur og sömuleiðis veiðarfæri. Skipstjóri áfrýjaði dómnum til hæsta- réttar, en við látum hér lokið frásögninni af þessari minnisstæðu eftirför. - Þó skal hér til fróðleiks skýrt frá hve lengi þær þrjár flugvélar sem veittu Van Dyck eftirför voru á lofti, en það var ekki neinn skammur tími: Glófaxi TF-ÍSA flaug 1080 sjómílur og var á lofti í 8 klukkustundir og 31 mínútu. Snæfaxi TF-ÍSD flaug 1275 sjómílur og var á lofti í 10 klukkustundir og 20 mínútur. Sólfaxi TF-lSJ flaug 660 sjómílur og var á lofti í 5 klukkustundir og 54 mínútur. Varðskipið Þór sigldi alls 325-6 sjómílur. 128 SJÓMANNADAGSBLAÐlg.