Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Blaðsíða 6

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Blaðsíða 6
6 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ Minnismerki helgað sjómönnum og sjósókn reist á 60 ára afmæli Sj ómannadagsins Rætt við Guðmund Hallvarðsson alþingismann og formann Sjómannadagsráðs að er löngu orðin venja að Sjómannadagsblaðið komi að máli við formann Sjó- mannadagsráðs og inni hann eftir því sem áunnist hefur í starfi samtak- anna frá fyrra ári og þá ekki síður hver þau nýju markmið eru sem sett hafa verið. Hér á eftir fylgir því viðtal við Guðmund Hallvarðsson alþingis- mann og formann Sjómannadags- ráðs og kemur á daginn að margt mikilsvert hefur náð fram að ganga og að mörg háleit markmið eru fyrir stafni. En eins og skyldan býður inn- um við Guðmund fyrst eftir því sem hæst bar á sl. ári. „Margt hefur gerst frá því er ég síðast átti viðtal við Sjómannadags- blaðið og man ég að í síðasta spjalli okkar ræddum við um íbúðablokk þá á lóð Hrafnistu sem stendur hér niðri við Kleppsveg, en þar er um að ræða 38 íbúðir fyrir aldraða. Þessar íbúðir voru teknar í notkun í byrjun desem- bermánaðar sl. og njóta íbúðirnar allrar þjónustu héðan frá heimilinu eins og alltaf var ráð fyrir gert. Þá mun nú á næstu vikum verða tekið í notkun sérstakt neyðarbjöllukerfi fyrir íbúana, sem mun auka öryggi þeirra að miklum mun. Verður þá séð fyrir öllum aðbúnaði fólks og ör- yggi eins vel og okkur er unnt að láta í té.“ Endurhæfíngarmiðstöðin tilbúin um áramót „Þá hlýt ég að víkja að nýju endur- hæfingarmiðstöðinni við Hrafnistu í Reykjavík, sem við höfum verið að Guðmundur Hallvarðsson formaður Sjó- mannadagsráðs: „Vonum að allt leiði þetta til þess að gera megi gott verk enn betra.“ (Ljósm.: Björn Pálsson) byggja í samstarfi við Reykjavíkur- borg og búin er glæsilegri sundlaug. Þessu verki miðar vel, en þótt við gerðum okkur vonir um að þetta mannvirki hefði mátt taka í notkun á sjálfan Sjómannadaginn nú í sumar, þá hefur ýmislegt orðið þess valdandi að við verðum að fresta vígslu stöðv- arinnar fram til næstu áramóta eða þar um bil. En verkinu miðar eigi að síður vel og ég heyri á vistfólki okkar að það efast ekki um að þangað eigi það eftir að sækja sér uppsprettu andlegrar og líkamlegrar velíðunar. En meðan við bíðum eftir sundlaug- inni og aðstöðunni hér fara aldraðir frá Hrafnistu héðan úr Reykjavík til Hafnarfjarðar, enda nýtingin á að- stöðunni þar frábær. Komur þeirra einna sem á heimilinu í Hafnarfirði búa voru um 7000 á síðasta ári og þegar litið er á viðbótina héðan úr Reykjavík má sjá hve eftirsótt þessi heilsurækt er. Sjúkraþjálfarar okkar bæði í Hafnarfirði og í Reykjavík hafa líka bent á hvílík afbragðsað- staða skapast við það að geta haft þetta allt fernt saman — sjúkraþjálf- un, leikfimisal, heita potta og sund- laug. Þetta mun að sjálfsögðu einnig verða allt fyrir hendi hér í Reykjavík, þegar aðstaðan verður fullbúin. Við tökum einnig eftir því núna að eftir að þetta svonefnda vistunarmat var tekið upp, en þá er sérstakur hópur sérfróðra manna látinn meta þörfina fyrir vistun fólks, kemur fólk hingað á heimilin við lakari heilsu en var — eldra, sjúkra og þarfnast meiri umönnunar. Því fremur vonumst við til að hin nýja aðstaða geri skjólstæð- ingum okkar lífið léttbærara. Enn mun hin nýja aðstaða leiða til þess að það verður talsvert rýmra um okkur hér á jarðhæð Hrafnistu, en alltaf virðist það vera svo að þörfin fyrir hvers kyns þjónusturými fer vax- andi.“ Rís nýja hjúkrunarálman á lóð Hrafnistu í Reykjavík? „Eitt af því sem segja má að sé í brennideplinum núna er það að við höfum sent bréf til Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytisins og ítrekað ósk okkar um að fá að byggja 90 rúma hjúkrunarálmu við Hrafnistu í Hafnarfirði, sem beðið hefur verið eftir í mörg ár. Með tilliti til þess svars sem við fengum frá ráðu-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.