Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Sjómannadagsblašiš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Sjómannadagsblašiš

						SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ

í Grímsnesinu hlýt ég að koma að því

að enn styrkari stoðum verður að

skjóta undir reksturinn. Því veldur

sundlaugin og það starfsfólk sem

nauðsyn ber til að hafa á staðnum og

í þessu skyni hef ég nú sent bréf til

allra stéttarsamtaka á Norðurlönd-

um. Þar hef ég boðið þeim svæði

undir sumarhús, enda verið að gæla

við þá hugmynd að koma þarna upp

sérstöku sumardvalarhúsahverfi

Skandinava. Við höfum þegar fengið

nokkur svör, sumir hafa afþakkað

þetta, en aðrir vilja gjarna athuga

málið. Vonandi á þetta eftir að skila

einhverjum árangri.

Þá hefur mikið fé verið lagt í leit að

heitu vatni — að vísu með misjöfnum

árangri — en nú hefur fundist heitt

vatn í Mýrarkotslandi, og höfum við

ástæðu til að vona að sprunga þaðan

liggi undir okkar landareign. Þetta

verður vandlega skoðað."

Umboðsmaður aldraðra

„En svo við hverfum frá málefnum

Sjómannasamtakanna í bili þá langar

mig til þess að víkja að því að ég hef

nú lagt fram á Alþingi tillögu til

þingsályktunar um umboðsmann

aldraðra. Við lifum í landi mikilla

umbreytingatíma og allir verða að

horfa fram til þess dags þegar að

starfslokum dregur. Margur hyggst

búa sig undir þessi umskipti með því

að leggja fyrir og þá er sá grundvöllur

sem treyst er á í dag ekki síst greiðsl-

ur frá lífeyrissjóði og frá almanna-

tryggingum um leið. Þá taka menn

eftir föngum tillit til skattamála og

hvernig um samspil tekna og gjalda

er búið. Menn gera sínar áætlanir eft-

ir bestu vitund — en síðan kann svo

að fara að ekki stendur steinn yfir

steini að nokkrum árum liðnum

vegna ófyrirsjánlegra breytinga,

gjarna vegna ráðstafana stjórnvalda.

Er það í sjálfu sér mjög alvarlegt mál

og bagalegt að ekki skuli tök á að

koma á einhvers konar stöðugleika í

þessum málaþætti.

í greinargerð með þessari þings-

ályktunartillögu kem ég einnig inn á

hve mikilvægt það er fyrir starfsfólk

heimila aldraðra að geta vísað á ein-

hvern ákveðinn aðila sem hefði það

hlutverk að gæta hagsmuna hinna

öldruðu. Meðal annars hafa komið

upp vandamál gagnvart ættingjum

vegna peningamála og fasteigna.

Þessi mál eru ekki mörg, en í ljósi

þess fjölda sem á dvalarheimilum býr

og á hjúkrunarheimilum er þörf á að-

ila sem vísa mætti á þegar slíkar deil-

ur rísa. Slíkur umboðsmaður mundi

létta miklu og leiðu fargi af starfsliði

heimilanna. Sem dæmi má nefna að

maður sem lenti í alvarlegum málum

vegna ábyrgða er hann hafði tekist á

herðar vegna barna sinna mátti þola

að lánastofnun ein skerti ellilífeyri

hans til endurgreiðslu fjárins.

Þá er því ekki að leyna að þegar

kemur að viðskiptum við kerfið og

þá ekki síst Tryggingastofnun ríkis-

ins — þótt þar sé hið besta og hæf asta

fólk sem hvers manns vanda vill leysa

— þá vill leiðin um kerfi stofnunar-

innar verða mörgum vandrötuð, svo

ekki sé meira sagt. Bótakerfið er satt

að segja orðið slíkur frumskógur að

engin vanþörf er á aðila sem leið-

beint geti öldruðum í gegnum hann.

Aðstoð við fólk í þessum efnum

mætti einmitt hugsa sér að félli undir

verksvið umboðsmanns.

Og svo ég haldi mig enn um sinn

við þingmálin, þá vil ég koma því að

að ég bíð spenntur eftir að sjá hver

niðurstaða þeirrar nefndar verður

sem skipuð var í kjölfar þeirrar

þingsályktunartillögu minnar að

rannsókn yrði gerð á því hver staða

sjómanna er til réttarbóta vegna

slysa sem þeir verða fyrir við störf

sín. Þessi nefnd hefur verið lengi að

störfum og vonast ég nú til að sjá

árangur af því starfi, því enginn vafi

leikur á að tryggingamál sjómanna

eru í miklum ólestri. Er ósk mín sú að

þetta starf verði til þess að málum

verði kippt í liðinn á þann hátt að

allir fái vel við unað."

Tekið að huga að

hátíðarhöldum í tilefni af 60

ára afmæli Sjómannadagsins

„Að tveimur árum liðnum verður

Sjómannadagurinn 60 ára og er

þegar tekið að ræða hvað gera megi

til að minnast þeirra tímamóta, líkt

og   þegar   Sjómannadagurinn   átti

hálfrar aldar afmæli árið 1988. Skotið

hefur upp hugmynd sem þá var rædd,

en hún var sú að fá þekkt glæsiskip úr

flota gamalla seglskipa til þess að

heimsækja landið. Þetta stóð semsé

til árið 1988, en var ekki unnt þá þar

sem slík skip söfnuðust saman í

Ástralíu, vegna 200 ára afmælis álf-

unnar sama ár. Þetta er þegar tekið

að kanna og senda bréf út í heim.

Þetta er samt aðeins ein þeirra

hugmynda sem upp hefur skotið, því

fleiri eru á döfinni: Þar á meðal er sú

að hér í Reykjavík hefur fram að

þessu ekki verið neitt minnismerki

helgað sjómönnum og sjósókn frá

fortíð til nútíðar. Því erum við þegar

farnir að leita til margra aðila um

samstarf um að reisa slíkt minnis-

merki sem þá mundi væntanlega

verða valinn staður á strandlengj-

unni með Sæbrautinni eða á hinum

nýja og glæsilega miðbakka við

Reykjavíkurhöfn. Þessi hugmynd

vonum við að verði orðin að veru-

leika á Sjómannadaginn 1998. Fleiri

hugmyndir hafa skotið upp kolli en

þetta læt ég nægja í bili."

Sjómannadagurinn í ár —

legsteinn helgaður týndum

sjómönnum

„Nýlega kom að máli við mig sjó-

mannskona sem misst hafði bróður

sinn í sjóslysi nærri 1960. Æ síðan

hefur hún fundið til þess sem fjöldi

annarra að ekki er um neinn stað að

ræða sem þeir geti horfið til sem

minnast vilja ættinga sinna úr sjó-

mannastétt sem horfið hafa með

þessum hætti. Lagði hún til að leg-

steinn eða minnismerki helgað þess-

um mönnum yrði sett upp í Fossvogs-

kirkjugarði, en þetta hefur þegar

verið gert víðs vegar á landinu. Þar

eru á rituð nöfn manna sem í sjó hafa

farist en ekki fundist og dánardægur

þeirra. Þetta mál er nú verið að

skoða í stjórn Sjómannadagsráðs og

höfum við rætt það við Kirkjugarða

Reykjavíkur og aðra sem málið varð-

ar. Er þar skemmst frá að segja að

þegar liggja fyrir frumteikningar af

þremur öldum úr steini, sem hugsa

mætti sér að settar yrðu upp við Foss-

vogskirkjuna að baki minnisvarða

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88
Blašsķša 89
Blašsķša 89
Blašsķša 90
Blašsķša 90
Blašsķša 91
Blašsķša 91
Blašsķša 92
Blašsķša 92
Blašsķša 93
Blašsķša 93
Blašsķša 94
Blašsķša 94
Blašsķša 95
Blašsķša 95
Blašsķša 96
Blašsķša 96
Blašsķša 97
Blašsķša 97
Blašsķša 98
Blašsķša 98
Blašsķša 99
Blašsķša 99
Blašsķša 100
Blašsķša 100
Blašsķša 101
Blašsķša 101
Blašsķša 102
Blašsķša 102
Blašsķša 103
Blašsķša 103
Blašsķša 104
Blašsķša 104
Blašsķša 105
Blašsķša 105
Blašsķša 106
Blašsķša 106
Blašsķša 107
Blašsķša 107
Blašsķša 108
Blašsķša 108