SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 17 VEÐURS. EKKERT SAMBAND VIÐ SKIPIÐ. GÚMBÁTUR FAR- INN FRÁ SKIPINU. EKKIGETIÐ UM HVORT MENN VÆRU í HONUM. BÁTINN MUN SENNI- LEGA REKA AÐ LANDI Á SVÆÐINU FRÁ SKUTULSFIRÐI AÐ SKÖTUFIRÐI." Ross Cleveland" sekkur Kl. 01.12 tilkynnti ísafjörður ra- díó að SVFÍ á ísafirði ætli að reyna að ná sambandi við bæi á svæðinu Skutulsfjörður-Skötufjörður og láta vita um bátinn. Kl. 01.35 tilkynnti Kingston And- alusite" H-41 að togarinn Ross Cleveland" H-267 hafi sokkið kl. 23.40 GMT. á 66 gráðum 08°5 N og 23 gráðum 03°0 V og mundi enginn hafa komist af. Sagði hann að þeir hefðu verið í nánd við togarann þegar hann sökk og sást enginn mað- ur yfirgefa skipið. Um kl. 02.00 þegar Ijóst var að ekkert var hægt að gera á strandstað Notts County" GY-643 var lónað vestur fyrir Bjarnarnúp til að svipast um eftir Heiðrúnu II" ÍS-12 og var því haldið áfram til kl. 07.00 án árangurs. Veður var þá farið að lag- ast undir Grænuhlíð og vestur undan Bjarnarnúp. Kl. 05.50 tilkynnti ísafjörður radíó að hann hefði heyrt neyðarkall á 2182 ko/s og mundi pað vera frá Notts County" GY-643. Um kl. 08.00 var aftur komið á strandstað, og var þá mun meiri vindur undir Bjarnarnúpnum en vestan til í Djúpinu, eða um 8 vind- stig af NA. Kl. 08.03 náðist slitrótt samband við Notts County" GY-643 og til- kynnti hann þá að mennirnir væru enn um borð í togaranum, en líðan þeirra væri mjög slæm. Kl. 09.18 tilkynnti Notts County" GY-643 að botninn væri að brotna undan skipinu og þeir væru að fara á flot um borð. Send voru þá fyrirmæli til skipshafnar togarans um að fara ekki frá borði, heldur bíða þess að veður batnaði, svo hægt væri að bjarga þeim frá sjó. Kl. 09.44 tilkynnti Notts County" Mynd sem þessa gefst ekki oft fri á að taka. Hér stendur Hermann Sigurðsson stýrimaður, nú flugmaður hjá Landhelgisgslunni, á Geirfugladrangi vestan Eldeyjar. Þar sem veður var óvenju gott og stórstraumsfjara gafstfri á að mæla dranginn en slíkt er varla mögulegt nema einu sinni eða tvisvar á ári. Myndin er tekin árið 1979. GY-643 að hann heyrði í flautu varð- skipsins og var það fyrsta vísbending- in um að við værum á réttum stað, en aldrei hafði sést til togarans nema í ratsjá. Einnig var Notts County" GY-643 tilkynnt að allt yrði gert til að hjálpa þeim, en ekki væri viðlit að senda bát eins og væri vegna veðurs. Kl. 10.00 tilkynnti Notts County" GY-643 að 18 menn væru á lífi, en 1 maður látinn og 4 menn væru með kal. Kl. 11.25 tilkynnti Notts County" GY-643 að 5 menn væru með kal og 2 aðrir veikir. Þá var togaranum til- kynnt að við mundum hefja björgun- araðgerðir strax og mögulegt væri. Um kl. 12.00 sást togarinn fyrst með berum augum, en varðskipið var þá 0.2 sml. frá togaranum. Veður var NA-7-12 vindstig og snjókoma. Það var fyrst um kl. 13.35 sem fært þótti að hefja björgunaraðgerðir og voru þær framkvæmdar eins og hér greinir: Varðskipið lónaði upp undir tog- arann og þegar 0.1 sml. var milli skip- anna fór gúmmíbátur með utan- borðsmótor yfir í togarann og hafði hann meðferðis 2 óútblásna 10 manna gúmmíbáta. í gúmmíbátnum voru þeir Sigurjón Hannesson 1. stýrimaður og Pálmi Hlöðversson 2. stýrimaður og höfðu þeir báðir boð- ist til að fara þessa ferð með sam- þykki skipherra. Þeim gekk ferðin vel yfir í togarann, nema hvað hægt gekk vegna þess hve hvasst var. Þegar þeir komu að síðu togarans blésu þeir upp annan björgunarbát- inn og notuðu einnig 10 manna gúmmíbát sem var við síðu togarans. Fór svo áhöfn togarans í þá. Þegar bátarnir lögðu frá togaranum, lónaði varðskipið 0.1 sml. frá togaranum og komust bátarnir þar að síðu varð- skipsins. Greiðlega gekk að ná mönnunum úr björgunarbátunum og var þessum björgunaraðgerðum lok- ið um kl. 14.30. Var síðan haldið til ísafjarðar og komið þangað kl. 15.20 og skipbrotsmennirnir settir í land, þar sem læknir tók við þeim. Á ísafirði var loftnetsbúnaður skipsins lagfærður eftir föngum og legið þar um nóttina. Hinn 6. febrúar kl. 09.00 var látið úr höfn á ísafirði og haldið á strandstað Notts County" GY-643. Tekið var lík skipverjans sem látist hafði og það flutt til ísafjarðar þar sem hafnsögubáturinn tók við því í