SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 19 vestur á Firði að nýju á fyrri slóðir. Man ég að á leiðinni, eða þann 31. mars, tókum við sjúkling frá Mjólk- árvirkjun og héldum með hann til Patreksfjarðar. Þaðan lá leiðin svo suður undir Jökul til þess að hjálpa netabátum sem kvartað höfðu undan ágangi frá breskum togurum. Til Reykjavíkur var svo komið eftir há- degið þann 2. apríl. Þetta held ég að sýni að það er oft í mörg horn að líta hjá varðskips- mönnum." Kysi mér sama starf aftur Pegar ég lít yfir farinn veg þá tel ég mig hafa verið gæfumann í starfi og ég held að ég mundi hiklaust velja mér starf varðskipsmannsins aftur. En þá er það aðeins eitt sem ég ósk- aði að ég hefði til brunns að bera og það er að ég byggi að þeirri reynslu í upphafi ferils míns sem ég hafði öðl- ast þegar ég hætti. Stundum hef ég sagt við kunningja mína að ég vildi ekki vera orðinn ungur aftur nema þá að ég fengi að taka reynsluna með mér. Það hafa skipst á skin og skúrir, birtu og gleði slær yfir sumt en svo eru þessar erfiðu stundir og minnist ég þess þá þegar við þurftum að taka líkin af drengjunum af honum Elliða um borð, en þau fundum við í gúmmíbát undir Jökli árið 1963. Öðr- um af skipshöfninni hafði verið bjargað. En þetta verðum við að láta nægja, því ætti ég að segja frá öllu því sem við hefur borið á mínum ferli mundi Sjómannadagsblaðið" ekki nægja til þess. Nei, ég hef ekki í hyggju að rita æviminningar mínar, þótt sumt hafi ég punktað niður handa nánustu ættmennum. En það vil ég taka fram að allan minn feril hjá Landhelgis- gæslunni átti ég því láni að fagna að starfa með úrvalsmönnum og það verður seint fullþakkað." AM r-rmf Tjaldur SH 270 I Tjaldur II SH 370 Eldborg RE 22 Kristbjörg VE 70 Guðrún Hlín BA122 Förde junior ppp*^ Oskum útgerðum og áhöfnum ofangreindra skipa til hamingju með frábæran árangurá línuveiðum. BBmk ¦ Særún GK120 "St ^Æ VEIÐARFÆRASALAN ^S DÍMON ehf. Skutuvogur 12E, 104 Reykjavlk, Stmi 588 1040, Fax 588 1041 Skipinnotall,5mm djúpsjávarlínu og 4ra þátta sigurnaglalínurfrá A/S Fiskevegn. . ... V 4b , . ¦"^ ., >r A <»HM£o'