48 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ Hátíðarhöld Sjómannadagsins í Hafnarfírði 1995 Að venju hófust hátíðarhöld Sjómannadagsins í Hafnar- firði með knattspyrnu- keppni frystitogara. Mikill spenning- ur fylgir þessari keppni og að sumra áliti ekki minni en í hinum hefð- bundna kappróðri sem ætíð hefur staðið uppúr sem aðalnúmer" dags- ins. Flestir þátttakendur í knatt- spyrnunni taka ennfremur þátt í öðr- um keppnisgreinum og eru þar ómissandi. Það er því hægt að hefna þess í héraði, sem hallaðist á Al- þingi," eins og sagt var. Laugardaginn 10. júní var blásið til leiks kl. 15.00 á Ásvöllum og var þar barist af hörku í mörgum snjöllum sóknum, þar sem bar fyrir augu áhorfenda brögð og langskot sem ekki sjást nema hjá heimsfrægum boltamönnum í sjónvarpi. Á nálæg- um velli fór fram á sama tíma deild- arleikur þar sem margir áhorfendur höfðu plantað sér niður, en áður en seinni lota hófst voru þeir flestir komnir að vallarsvæði sjómanna og hvöttu leikmenn ákaft. Urslitarimman stóð á milli Ránar og Ýmis og urðu liðin að ná fram sigri með vítaspyrnukeppni. Röð liða var þessi: 1. Rán 2. Ýmir 3. Sjóli 4. Haraldur Kristjánsson Fánar voru dregnir að húni á sunnudagsmorgni kl. 8.00 og hátíð- arsvæðið við Óseyrarbryggju prýtt með merkjaflöggum kl. 09.30. Blóm- sveigur var lagður að minnismerki um horfna sjómenn og gerðu það þær Nicollína Vigfúsdóttir og Elísabet Götustrákar náðu besta tíma í kappróðri þriðja árið í röð og hlutu Eyjapeyjabika- rinn. Þeir reru brautina tvisvar og höfðu tímana 1.25.9 og 1.28.1, sem var nstbesti brautartíminn. mí l*rC£TT#ai Fótboltaliðið afRán sigraði í fótboltaliði frystitogara. T Barnakór Þjóðkirkjunnar. Stjórnandi Brynhildur Auðbjargardóttir.