50 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ sinnuleysistímbil hafa gengið yfir. Þórhallur er heiðursfélagi í Skip- stjóra- og stýrimannafélaginu Kára." Aðrir heiðurskarlar voru: Þorleifur Gunnarsson Bjarni Bjarnason Ólafur Sigurgeirsson Sigurður Gunnarsson Barnakór Þjóðkirkjunnar söng, stjórnandi var Brynhildur Auðbjarg- ardóttir. Eftir sönginn á pallinum fór kórinn vestur á Hrafnistu og söng fyrir vistfólk. LADDI, hinn eini og sanni, brá á leik með söng og gamanmál og skemmti fólki svo vel að hláturinn ómaði um allan bæ. Honum til að- stoðar var Hjörtur Hwoser. Björn Thoroddsen sýndi listflug við mikinn fögnuð og hefðu fáir vilj- að sitja við hlið hans í vélinni, þegar hann tók lykkjur og bakföll yfir höfn- inni, eða lét flugvélina hringsnúast eins og skopparakringlu á fullri ferð niður. í>að var engu líkara en að hann ætlaði að stinga henni beint í sjóinn. Þyrla Landhelgisgæslunnar kom og sýndi björgun úr sjó. Milli riðla í róðrarkeppninni sýndu félagar úr Fiskakletti björgun úr sjó og fóru í koddaslag. Hestaleiga var fyrir börn og voru gæðingarnir mikið notaðir af smáfólkinu. Lúðrasveit Hafnarfjarðar lék milli atriða á pallinum. Besta tíma skipshafna í róðrar- keppninni náði áhöfnin á Hring, 1.29.6, en af landsveitum höfðu Götustrákar vinninginn og var tími þeirra 1.25.9, sem jafnframt var besti TOGHLERAR FYRIR ALLAR TOGVEiÐAR" J. HINRIKSSON H.F. SUÐARVOGI4 104REYKJAVÍK SIMAR 588 6677/568 0775 MYNDSENDIR 568 9007 FRAMLEIÐENDUR TOGBUNAÐARIARATUGI" brautartíminn og fengu þeir Eyja- peyjabikarinn. Dagskránni lauk með Sjómanna- hófi á Hótel Sögu og var Gunnar Rafn veislustjóri, en hann hafði áður innt það starf af hendi við góðan orð- stír. Ríó Saga og Jóhannes Kristjáns- son eftirherma skemmtu gestum, en hljómsveitin Saga Klass sá um dans- músíkina. Skemmti fólk sér konung- lega fram eftir nóttu, eða eins og seg- ir í brag um Sjómannadaginn: Þar var fjör og fjöldasöngur fagnaðarlti, marsagöngur. Gunní stýrði því veislu-standi þó strákurinn alltaf vinni í landi. Ráp milli borða, boðið í glas, bjórkollur tæmdar félaga mas. Dömur þar við ýmsa drjóla, dansa af list og textann góla. " Sendum / Sjomonnum árnaðaróskir á hátíðisdegi þeirra NÝHERJI