SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 53 Haldið til Grimsby Þá var sett á fulla ferð og stefna tekin á Pentil. Það er ekki örgrannt um að fiðringur hafi farið um maga þess úr áhöfn Jennýjar sem yngstur var og ekki þurfti að hafa áhyggjur af þeim sem heima biðu. Engin loft- skeytatæki voru um borð í Mac Cenzie. Þegar til Grimsby kom lét skip- stjórinn ræðismann Danmerkur vita af þrem skipbrotsmönnum frá ís- landi um borð í skipi sínu. Togara- menn fóru frá borði, hver til síns heima. Um borð kom vaktmaður sem sér íslendingunum fyrir mat, en lokar þá síðan niðri í káetu um nótt- ina og aðrar nætur og segir þeim óheimilt að fara í land. Á öðrum eða þriðja degi birtist á bryggjunni stórglæsilegur maður sem reyndist vera íslendingur búsettur í Grimsby, Árni Jóhanns- eða Jó- hannesson. Hann sagðist hafa séð það í blöðum staðarins að þar væru komnir skipbrotsmenn af íslandi og hafi hann farið að spyrjast fyrir um þá á sjómannaheimilum og hótelum en ekki fundið. Þeir sögðu honum aftur á móti frá boðunum sem danska konsúlnum hefðu verið send, en ekkert hafi frá honum heyrst. Sá djöfull, láttu mig þekkja hann. Hann gerir aldrei nokkurn skapaðan hlut þegar íslendingar eru annars vegar. Ég skal tala við kauða." Að svo mæltu var Árni rokinn. Þetta var að áliðnum degi. Árni var ekki lengi í burtu. Að vörmu spori er hann kom- inn aftur, segist vera búinn að tala við ræðismanninn og í fyrramálið verði þeir sóttir. Morguninn eftir kemur Árni í leigubíl og fer með skipbrotsmenn- inna á hótel, þar sem þeir höfðu verið innritaðir. Og ekki nóg með það, hann fer með þá í verslun þar sem hann lætur þá fata sig yst sem innst og segir þá ekki þurfa að hafa áhyggjur af greiðslu þess fatnaðar. Danski Pétur" kemur til þeirra á hótelið og er leiður mög. Segir að það hafi verið ætlun sína að gera ann- an túr á íslandsmið, en nú hafi þetta breyst, hann fari hvergi, en að hann sé búinn að útvega þeim far til ís- Skipakvíar í Grimsby áfyrstu áratugum aldarinnar. lands með öðrum togara. Að skiln- aði gefur hann þeim eitt pund hverj- um og urðu þetta einu vasapeningar þeirra í þessari óvæntu utanlandsför. Þeir fóru síðan um borð í togarann Sir Alcott, sem fór með þá rakleitt til Vestmannaeyja. Þessi togari var síð- ar keyptur til Reykjavíkur og fékk nafnið Geir." Heimtir úr helju f morgun kom hingað breskur tog- ari Sir Alcott", með skipbrotsmenn af bátnum sem rak mannlaus á Með- allandsfjörur á dögunum. Báturinn (Jenný") var frá Reyðarfirði og fór þaðan 13. ágúst...." (Upphaf fréttar úr sama blaði laugar- daginn 30. ágúst 1919) Löngu eftir að þeir voru komnir heim til sín austur á Reyðarfjörð fá þeir boð frá sýslumanninum á Eski- firði um að þar sé reikningur frá ræð- ismanni Dana í Grimsby vegna fata- kaupa þeirra félaga þar í borg. Það fréttu þeir til Reykjavíkur af Gissuri Filippussyni að hann hafi komist heilu og höldnu til Reykjavíkur. Árið 1925 fórst vélbáturinn Oddur SU-414 frá Reyðarfirði. Hann var á leið á vertíð suður á Hornafjörð. Með honum voru sjö manns og fórust öll, þar á meðal félagar Jörgens úr þessari eftirminnilegu ferð, þeir Jón Árnason formaður og Sigurður Magnússon háseti. Blessuð veri minning þeirra. Greinþessi birtist í Sjómannadagsblaði Neskaupstaðar árið 1989. Þar sem frá- gangur hennar þar var ekki að skapi höf- undar er honum Ijúft að Ijá hana til endur- birtingar íþessu blaði. Aðalsteinn Gíslason Hdfnafjdfödrbær sendir öllum íslenskum sjómönnum érnaödróskir á hátiöisdegi þeirra