Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Sjómannadagsblašiš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Sjómannadagsblašiš

						56

SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ

reiöann til þess. Það voru þeir yngstu

og röskustu sem til þess völdust.

Þegar góður byr var og siglt mikinn,

hvort heldur sem menn sigldu beiti-

vind og „krusuðu" eða á lensi, þá var

það venja að skipstjórinn stóð alltaf

sjálfur við stýrið.

En ekki byrjaði alltaf vel og þessi

skip gátu verið þrjá til fjóra daga frá

Jökli inn til Reykjavíkur. Þegar sást

til skútu við Gróttu sem lá og komst

hvergi vegna þess að ekki byrjaði var

vélbátur stundum sendur að draga

hana inn, en vélbátar voru þá nýlega

komnir til sögunnar.

Nei, fæðið um borð var ekki marg-

brotið: Borðaður var fiskur alla daga

en saltkjöt soðið á sunnudögum.

Engar kartöflur voru með matnum

en skonrok etið og rúgbrauð. Skon-

rokið vildi mygla fljótt og rúgbrauðið

líka, en þetta var geymt í strigapoka

ofan á saltinu í afturlestinni. Þótt-

brauðið væri orðið hvítmyglað var

það etið samt, því engu mátti fleygja.

Það var stundum soðið með fiskinum

og púðursykur settur út í til bragð-

bætis. Þetta var kallað hundsbelgja-

glás og mér fannst hún ágæt — að

minnsta kosti varð öllum gott af.

Frá þessum eftirminnilega túr á

kútter Sigríði ætti ég að geta þess að

við urðum varir við mörg bresk

herskip úti af Vestfjörðunum og

skildum við ekki í hvað því mundi

valda. Þetta voru stór skip og sté upp

af þeim biksvartur kolareykurinn.

En þegar við komum heim bárust

okkur þær fregnir að heimsstyrjöldin

fyrri væri hafin, og þar var komin

skýringin á ferðum herskipanna."

Á Gylfa og Belgaum

„Um þetta leyti voru fyrstu togar-

arnir komnir til landsins, og þar á

meðal voru tveir í eigu Th. Thor-

steinsson, Baldur og Bragi. Þeir og

margir fleiri af þessum togurum voru

hins vegar seldir Frökkum 1917 sem

mjög vantaði skip á stríðsárunum.

Kveldúlfur hélt þó sínum skipum og

Alliance seldi aldrei Jón forseta.

Þegar stríðinu lauk komu margir

nýir togarar til landsins og þeirra á

meðal Gylfi, Belgaum og Egill

Skallagrímsson.   Þótt   ég   væri   þá

aðeins fimmtán ára gamall fékk ég

pláss á einum þessara togara, en

hann var Gylfi. Þar var skipstjóri Jó-

el Jónsson, en útgerðin var Defen-

sor. Ég var á Gylfa aðeins um haustið

og þetta var hörkuvinna og menn

stóðu uns þeir voru orðnir alveg

magnþrota og ónýtir. Þegar þeir

komu ofan í hlýjuna í lúkarnum á

morgnana duttu ýmsir steinsofandi

ofan á diskinn. Ýmist var fiskað í ís

eða þá í salt. Þegar fiskað var í ís var

staðið meðan fiskaðist og á saltinu

var ekki betra — því þá var alltaf fullt

dekk. En þá voru engin vökulög og

þetta var bara svona á þessum skip-

um.

Jóel Jónsson var hið mesta ljúf-

menni og minnist ég hans með hlýju,

því hann var mér unglingnum mjög

góður. Þótt hann hlífði ekki öðrum

þá hlífði hann sjálfum sér ekki held-

ur.

Á Gylfa kom ég í fyrsta skipti til

Englands en við sigldum með fisk til

Fleetwood. Þetta varð ansi löng dvöl

því við lentum í kolastræk og kynnt-

ist ég því Bretagrund þarna dálítið.

I ársbyrjun 1920 réð ég mig á togar-

ann Belgaum til Þórarins Olgeirsson-

ar. Þar var mikið unnið eins og á

Gylfa, en Þórarinn tók það upp hjá

sjálfum sér að sjá til þess að menn

fengu fjögurra tíma svefn. Hann sá

að það borgaði sig því að þannig fékk

hann meiri vinnu út úr mönnunum.

Aldrei var stoppað nema einn dag í

landi — komið að morgni og farið út

að kvöldi. Þennan tíma sváfu menn.

Skipin voru úti 5-10 daga ef veitt var í

ís, og fór það þá eftir aflanum. Á salti

voru túrarnir miklu lengri. Áhöfnin á

ísfiskveiðum var 20-22 menn en á

saltinu um 30 menn."

í Halaveðrinu

„Eg var á Belgaum til 1924, en þá

um sumarið réð ég mig til síldveiða

um skeið á bát sem hét Ásgeir, skip-

stjóri Snæbjörn Stefánsson. Um

haustið tók hann við togaranum Agli

Skallagrímssyni og fór ég um borð til

hans og var með honum í átta ár.

Á því skipi lenti ég í Halaveðrinu

7.-8. febrúar 1925. Það bjargaði okk-

ur frá því að fara niður eins og Leifur

heppni og Fieldmarshal Robertson

að við vorum búnir að brenna mestu

af kolabirgðunum og að afli hafði

verið tregur. Skipið var því létt og

kom upp úr sjóunum sem yfir það

riðu. Annars hefðum við ekki haft

það af. Við sáum Leif heppna að

veiðum skammt frá okkur og var

fuglager í kringum hann, því Gísli

skipstjóri var seigur að fiska á Halan-

um. Ég veit ekki til að neinn hafi séð

Leif heppna eftir það.

Eftir þessi átta ár á Agli Skalla-

grímssyni lá leiðin um borð í Gull-

topp til Halldórs Gíslasonar skip-

stjóra. Þar var ég í önnur átta ár, og

hafði þá verið í 16 ár á skipum Kveld-

úlfs."

30 ár á frystiskipum

„í stríðsbyrjun fór ég af Gulltoppi

á togarann Skutul frá ísafirði sem

stýrimaður hjá Árna Ingólfssyni

skipstjóra og var á togurum upp frá

því til 1955. Þá hætti ég til þess að

gerast fulltrúi Sölumiðstöðvar hrað-

frystihúsanna um borð í frystiskipum

á leið þeirra í kringum landið.

Við þessi störf var ég næstu þrjátíu

árin eða til ársins 1982, en þá var ég

orðinn 82 ára. Þá spurði minn ágæti

yfirmaður mig hvort ég vildi ekki

fara að hætta og féllst ég á það —

varð nú hálf feginn...

Já, þetta er orðinn langur ferill á

sjónum og nú nýt ég kyrrðarinnar og

næðisins hér á Nýlendugötunni þar

sem ég er fædddur. Við bjuggum

löngum tvö hérna síðustu árin, ég og

konan mín Helga Halldórsdóttir, en

hana missti ég fyrir fjórum árum.

Hún var ættuð úr Hnífsdal og því af

vestfirskum ættum eins og ég. Við

giftum okkur árið 1939 og eignuð-

umst tvær dætur.

Mér finnst gott að það er skammur

spölur niður að höfninni og þangað

læt ég aldrei undir höfuð leggjast að

fá mér göngutúr á hverjum degi."

Við þökkum þessum aldna höfð-

ingsmanni fyrir spjallið og óskum

honum margra fagurra ellidaga í við-

bót.

AM

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88
Blašsķša 89
Blašsķša 89
Blašsķša 90
Blašsķša 90
Blašsķša 91
Blašsķša 91
Blašsķša 92
Blašsķša 92
Blašsķša 93
Blašsķša 93
Blašsķša 94
Blašsķša 94
Blašsķša 95
Blašsķša 95
Blašsķša 96
Blašsķša 96
Blašsķša 97
Blašsķša 97
Blašsķša 98
Blašsķša 98
Blašsķša 99
Blašsķša 99
Blašsķša 100
Blašsķša 100
Blašsķša 101
Blašsķša 101
Blašsķša 102
Blašsķša 102
Blašsķša 103
Blašsķša 103
Blašsķša 104
Blašsķša 104
Blašsķša 105
Blašsķša 105
Blašsķša 106
Blašsķša 106
Blašsķša 107
Blašsķša 107
Blašsķša 108
Blašsķša 108