SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 65 Sjóslys og drukknanir 1. maí 1995 -1. maí 1996 13. september 1995 (erlendis) Fórst Sverrir Guðjón Guðjónsson 30 ára, fæddur 3.4. 1965, búsettur í Luderitz í Namibíu, eftir að hafa fallið útbyrðis að talið er af frystitogaranum President Agustinho Neta, en eng- in vitni voru að atburðinum. Var Sverrir Guðjón annar stýri- maður á togaranum sem er í eigu sjávarútvegsfyrirtækisins Seaflower Whitefish í Luderitz. Skipið var að veiðum á veiði- slóðinni við sunnanverða Namibíu í þokkalegu veðri. Sverrir Guðjón lætur eftir sig eiginkonu (ekki getið um börn). Minning Baldvin Jónsson fv. framkvæmdastjóri Fæddur 25. október 1922 - Dáinn 21. febrúar 1996 Baldvin Jónsson fæddist í Reykjavík 25. október 1922. Hann andaðist á Landspítalanum 21. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sigurlaug Þorkelsdóttir og Einar Jónsson, en kjörforeldr- ar voru Gunnhildur Þorvaldsdótt- ir og Jón Einar Gíslason. Baldvin var næstyngstur 11 systkina. Hann kvæntist 11. mars 1944 eftirlifandi eiginkonu sinni Magneu Haralds- dóttur. Börn þeirra eru fjögur. Baldvin útskrifaðist frá Verzl- unarskóla íslands 1940 og vann ýmis skrifstofustörf í Reykjavík framan af starfsævinni, m.a. hjá Vöruhappdrætti S.Í.B.S, en var síðan framkvæmdastjóri DAS frá stofnun þess. Á fundi Sjómannadagsráðs í febrúar 1954 komu fram hug- myndir um að setja á stofn happ- drætti til fjáröflunar vegna bygg- ingar Dvalarheimilisins, sem varð að veruleika í júní sama ár. Baldvin Jónsson hafði verið ráð- inn til starfa að undirbúningi happ- drættisins ásamt Auðuni Hermanns- syni, en þeir félagar unnu saman að þessum málum og gerðu krafta- verk", því færri fengu miða en vildu þegar happdrættið hóf rekstur í júlí 1954. Baldvin Jónsson var framkvæmda- stjóri Happdrættis DAS frá upp- hafi og stýrði málum þar af rögg- semi og þurfti þá ekki síður góðar hugmyndir að vinningum, til að halda happdrættinu líflegu, þann- ig að vel félli að áhuga almenn- ings. En Baldvin tókst einnig að halda tilgangi happdrættisins hátt á loft, hvar hann átti hugmynd að þeirri nálgun með orðunum bú- um öldruðum áhyggjulaust ævi- kvöld." Það er aðdáunarvert þegar litið er yfir farinn veg fyrstu ára upp- byggingar Hrafnistu í Reykjavík, einstakt samstarf ötulla manna framkvæmda og fjáröflunar, hve vel hefur tekist til, enda tala verk- in sínu máli. Baldvin Jónsson lét af störfum hjá Happdrætti DAS fyrir aldurs sakir á miðju ári 1990 eftir 36 ára gott starf í þágu þess og sjómanna- samtakanna. Guðmundur Hallvarðsson