SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 67 Minning Ásgeir Jakobsson Fæddur 3. júlí 1919 - Dáinn 16. janúar 1996 Ég hafði sem ungur maður veitt athygli sérstökum blaðagreinum um sjávarútvegsmál, tilskrifum Ásgeirs Jakobssonar, sem einatt nálgaðist málefnið frá öðru sjón- arhorni en almennt var um rætt eða ritað. Beint var að efninu komist og án nokkurra vífillengja sem þá olli frekara umróti, um- ræðan gleggri og henni gerð betri skil. Árið 1973 tók Ásgeir að sér að sjá um bókasafn Hrafnistu, jafn- framt því sem hann ritstýrði Hrafnistubréfinu, hvar megin- hluti efnis voru viðtöl við aldraða vistmenn. Hann hafði sérstaka hæfileika til að ná fram í viðtölum sínum frásögnum þeirra öldruðu af fortíðinni, svita og erfiði for- feðranna sem veittu byr til far- sældar landi og þjóð. Ásgeir er mér minnisstæður frá þessum árum, einkum fyrir við- tölin við aldraða sjómenn sem bjuggu yfir hafsjó af fróðleik og ómetanleg saga þeirra úr fortíð- inni væri hvergi skráð, ef Ásgeirs hefði ekki notið við. I bókasafn- inu var oft spjallað um mál fortíð- ar sem síðan leiddu til merkra frá- sagna á prenti. Fyrirhöfnin virtist lítil vera og ekki var tímaleysið að plaga hann. í nokkur ár sá Ásgeir um og ritstýrði Sjómannadagsblað- inu sem sjómannasamtökin í Reykja- vík og Hafnarfirði (Sjómannadags- ráð) hafa gefið út síðan 1938. í tilefni 50 ára afmælis Sjómanna- dagsins 1988 gáfu sjómannasamtökin út bókina Siglingasaga Sjómanna- dagsráðs, mikið ritverk, sem Ásgeir Jakobsson samdi. Þegar hann settist að ritun þessa verks var úr miklum gögnum að moða sem þá höfðu ekki verið flokkuð og því nokkuð erfitt um aðgengi gagna allt frá árinu 1935. Þegar Ásgeir Jakobsson fylgdi Siglingasögu Sjómannadagsráðs úr hlaði ritaði hann m.a. eftirfar- andi: Söguna hef ég sett saman eftir fundargerðabókum fulltrúaráðs- ins og stjórnar þess og lítið sem ekki leitað munnlegra heimilda, enda átti ég sjálfur ærið af þeim í eigin fórum eftir tuttugu ára náin kynni af sjómannasamtökunum og forystumönnum þar. Ekki er bókin þó algerlega í stíl hefðbund- inna sagnfræðibóka. Höfundur- inn hefur leyft sér að skjóta inn athugasemdum og útleggingum ófræðimannslegum af sinni nátt- úru." Ásgeir hafði þá náttúru til að bera að festa á blað ritað mál sagnfræðinnar svo vakti áhuga og forvitni á fortíðinni þegar maður tók bækur hans sér í hönd, enda munu þær skipa sérstöðu í bók- menntum okkar íslendinga. Um leið og ég fyrir hönd stjórn- ar Sjómannadagsráðs þakka Ás- geiri Jakobssyni góða samfylgd, vináttu og hollustu við sjómanna- samtökin og Hrafnistuheimilin, sendi ég aðstandendum hans inni- legar samúðarkveðjur. Guðmundur Hallvarðsson for- maður Sjómannadagsráðs *ye/zc/ót/?v öt %&//& ^ám&/z/?/6/>/?v áwi/^/v&Á//1 Vélskóli íslands í húsi Sjómannaskólans