Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Sjómannadagsblašiš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Sjómannadagsblašiš

						74

SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ

„í sömu andrá heyri ég kallað

að skipið sé að sökkva..."

Rætt við Árna Jón Konráðsson sjómann um 46 ára feril á sjónum og þar á meðal

þann atburð er togarinn Fylkir rakst á tundurdufl og sökk árið 1956

A

Sjómannadaginn 1989 var

Árni Jón Konráðsson, fé-

lagi í Sjómannnafélagi

Reykjavíkur, á meðal þeirra sem

sæmdir voru heiðursmerki dagsins.

Árni Jón er fæddur þann 16.9.1926 á

Móum í Grindavík og verður því

sjötugur nú í haust. Foreldrar hans

voru jsau Sigríður Jónsdóttir og Kon-

ráð Árnason sjómaður og síðar inn-

heimtumaður í Reykjavík og voru

börn þeirra átta talsins. Árni Jón

stundaði sjóinn í 46 ár og geri aðrir

betur. Síðast var hann háseti á togar-

anum Engey, eða allt til þess 13. des-

ember 1994 þegar skipið var sent ut-

an til breytinga og allri áhöfninni sagt

upp. Sjómennskuferill hans hefur

verið afburða farsæll, þótt víst hafi

hann lent í ýmsu, eins og þegar hann

var háseti á gamla Fylki er skipið

rakst á tundurdufl og sökk árið 1956.

Hann hefur einkum verið á togurum

og mun nöfnum þeirra skjóta upp

einu af öðru í spjallinu hérna á eftir.

En það er til marks um viðhorf Árna

til samferðamanna sinna á sjó og

landi að aldrei telur hann sig hafa

kynnst nema góðum drengjum — og

hafi mátt segja eitthvað annað um

einhvern lætur Árni nægja að segja

að hann „hafi þá verið sjálfum sér

verstur.

Árni býr nú að Rjúpnafelli 42 í

Reykjavík. Hann er kvæntur Helgu

Helgadóttur og eru börn þeirra sjö.

Við innum hann fyrst eftir æskuárun-

um, og spyrjum í framhaldi af því

hvenær hann hafi byrjað þennan

langa sjómennskuferil?

„Eins og fram hefur komið er ég

fæddur í Grindavík, en var aðeins

Æ

Arni Jón Konráðsson: „Heyrði óvenju-

lega skruðninga og ályktaði sem svo að

skipið hefði borist inn í eitthvert ís-

hröngl," (Ljósm.: AM)

fjögurra ára þegar foreldrar mínir

fluttust til Reykjavíkur. Þannig er ég

alinn upp sem Reykvíkingur," segir

Árni Jón. „Ég var mikið í sveit á

sumrum á unglingsárunum og 1941

þegar hernámið kom fór ég að vinna

við gerð flugvallarins í Skerjafirði,

enda sóttu allir í Bretavinnuna í þá

daga. Síðar vann ég svo ýmsa verka-

mannavinnu hjá Reykjavíkurborg,

uns sjómennskuferill minn hófst.

Sjómennskuferilinn hóf ég á 105

tonna mótorbáti, Ingólfi Arnarsyni,

sem var í eigu Ágústs Snæbjörnsson-

ar og Karls Jónssonar og gerður var

út frá Reykjavík. Það var árið 1948.

Þetta var í nóvember og ætlunin var

að fiska fyrir Englandsmarkað. Við

héldum því hér út í Bugtina og þá inn

á Breiðafjörð, fiskuðum þar um hríð

en fórum svo og keyptum það sem á

vantaði af Grundfirðingum til þess

að fylla bátinn og var það koli. Farið

var til Fleetwood og er mér minnis-

stætt að á heimleiðinni fengum við

hið versta veður, svo heimsiglingin

tók langan tíma. Þegar við vorum

komnir að Mön hafði komist slík

slagsíða að bátnum að við fórum allir

sem vettlingi gátum valdið og mok-

uðum til kolum þar niðri uns bátur-

inn rétti sig. Man að við vorum sam-

skipa báti þeim sem Otur hét á heim-

leiðinni og hann hafði einnig fengið

slagsíðu á sig. Þeir höfðu hins vegar

ekki tekið sama ráð og við — að

moka til kolunum — og komu tveim-

ur sólarhringum á eftir okkur til

Reykjavíkur fyrir vikið. Var Otur þó

stærri bátur. Þetta er nú helsta minn-

ingin um fyrstu raunverulegu sjó-

ferðina mína."

Eftirsótt pláss

„Á þessum báti, Ingólfi Arnar-

syni, var ég um tíma og ætlaði með

þeim á síld um sumarið 1950, en þá

vildi það óhapp til að báturinn

strandaði við Knarrarósvita, svo

ekki leit út fyrir að neitt yrði úr þeim

áformum. Réði ég mig því í febrúar

1950 á Bjarnarey VE-11 og fórum við

einn saltfisktúr til Englands. Skip-

stjóri var Óskar Gíslason, prýðis-

maður. Á Bjarnaeynni var ég þó

aðeins fram í maí þetta ár, en þá

hætti ég á skipinu þar sem sem ég var

svikinn um kaupið, og líkaði það

heldur miður sem von var.

En þá kom minn gamli útgerðar-

maður Ágúst Snæbjörnsson að máli

við mig og sagði mér að hann hyggð-

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88
Blašsķša 89
Blašsķša 89
Blašsķša 90
Blašsķša 90
Blašsķša 91
Blašsķša 91
Blašsķša 92
Blašsķša 92
Blašsķša 93
Blašsķša 93
Blašsķša 94
Blašsķša 94
Blašsķša 95
Blašsķša 95
Blašsķša 96
Blašsķša 96
Blašsķša 97
Blašsķša 97
Blašsķša 98
Blašsķša 98
Blašsķša 99
Blašsķša 99
Blašsķša 100
Blašsķša 100
Blašsķša 101
Blašsķša 101
Blašsķša 102
Blašsķša 102
Blašsķša 103
Blašsķša 103
Blašsķša 104
Blašsķša 104
Blašsķša 105
Blašsķša 105
Blašsķša 106
Blašsķša 106
Blašsķša 107
Blašsķša 107
Blašsķša 108
Blašsķša 108