SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 77 son pokamaður sem rakst á kopp á spilinu og fór úr axlarliðnum. Aðrir hlutu minni meiðsl. Margan hefur furðað á að við skyldum ekki heyra einhverja ógur- lega sprengingu þegar skipið rakst á tundurduflið og kann ég ekki skýr- ingu á því. En öflug sprenging var þetta eigi að síður og kann ég að greina frá ljósu dæmi þess: Meðal áhafnarinnar var vestfirskur maður að nafni Hjálmar. Hann var að setja rópinn í að aftan þegar sprengingin varð og við það kom slíkur halli á skipið að hann hraut útbyrðis en skaut innbyrðis aftur um leið og skip- ið rétti sig. Þetta er satt, svo ótrúlega sem það kann að hljóma." Nýtt skiprúm eftir tvo daga Ekki liðu nema tveir dagar frá því ég kom í bæinn eftir að Fylkir sökk þar til ég hafði ráðið mig á nýtt skip. Var það togarinn Júlí sem fórst í Ný- fundnalandsveðrinu mikla árið 1959. Ekki er ætlun mín að styggja nokk- urn mann þótt ég segi að ekki hafi ég gert meira glappaskot um dagana en að ráða mig þar um borð. Því olli sú óskaplega sóknarharka sem á Júlí tíðkaðist. Man ég að eitt sinn vorum við einskipa að veiðum í fjóra sólar- hringa í ófæru veðri fyrir vestan land. Við vorum jafnan tveir á trollvakt og vorum við eitt sinn saman á vaktinni ég og sá þjóðkunni Markús Þorgeirs- son sem björgunarnetið Markús" er kennt við. Þar sem Markúsi var ætlað að slá úr notaði ég tækifærið og hugð- ist fara og fá mér að borða. Ákvað ég að vera fljótur að borða og reyna síðan að komast fram í án þess að blotna, enda var vaktin búin og ég ætlaði í koju. En það stóðst á endum að þegar trollið kemur upp en í því var mik- ill fiskur slitnaði afturrópurinn og tók fyrir vikið tók þrjá klukkutíma að taka trollið. Meðan á því brasi stóð kom sjór á skipið með þeim afleið- ingum að sá sem stóð við framvant- inn í pokapontunni við talíuna, sem pokinn er tekinn inn á, tókst á loft og flaug yfir endilangt skipið. Varð hon- um það fyrir að hann greip um Helga Helgadóttir tekur við heiðursmerki Sjómannadagsins úr hendi Péturs Sigurðs- sonar árið 1989, en bóndi hennar var þá staddur á hafi úti. strekktan gilsinn og féll þaðan niður á spilkoppinn og meiddist talsvert. í þessu sama ólagi skorðaðist stýri- maðurinn uppi við spilið og taldi sig hafa rifbeinsbrotnað, sem til allrar hamingju reyndist þó ekki vera. En ekki var slegið slöku við og þegar það sem í trollinu var hafði náðst inn reyndust það vera um 30 tonn. Ekki var tekið að gera að fiskinum við svo búið heldur strengt yfir hann net og þar með siglt í var. Segir það sína sögu að meðan við vorum á innsigl- ingunni eftir þessa fjögurra sólar- hringa útiveru mættum við öðrum togurum sem loks þá voru að halda á miðin. Strax og í var kom var tekið að gera að aflanum og dytta að því sem úrskeiðis hafði farið í veðurhamnum og síðan haldið út á ný. Skyldi siglt til Bremerhafen og stefnan tekin norð- ur fyrir land í vonskuveðri. En ekki var áhöfninni ætlað að sitja auðum höndum heldur vorum við látnir vera úti á dekkinu við að splæsa grandara og annað dót. Man ég sérstaklega eftir því að þegar siglt var fyrir Langanes mátti heita að bakborðs- gálginn væri nær stöðugt í kafi. Var tækifærið notað þegar siglt var í gegnum Færeyjar til þess að gera við það sem úr lagi hafði færst í sjó- gangnum. Sem dæmi má nefna að um helmingur hlífðarborðanna í pontunni hafði rifnað upp í sjóunum. Á Júlí reyndi ég þá hörðustu sjó- sókn sem ég hef haft reynslu af um dagana." Fundin Fylkismið" Ég var á Júlí fram í janúar 1957, en þá fór ég á togarann Egil Skalla- grímsson og var á honum fram á vor, eða uns mér bauðst pláss á nýjum Fylki sem þá kom til landsins. Á Fylki unnum við þau afrek að við fundum hin svonefndu Fylkismið" við Grænland og einnig Nýfundna- landsmiðináriðl958. Þarvaroftfisk- að mikið og man ég eftir þrem túrum sem við fórum á þessa bugt og kom- um að landi með ein 330 tonn í hvert skipti. Á 33 dögum munum við hafa veitt 930 tonn alls. Þarna var ég allt til ársins 1964 þegar togaraverkafall stóð fyrir dyr- um, en þá fór ég á vélbátinn Sigfús Bergmann frá Grindavík. Á Sigfúsi Bergmann var ég svo allt til þess tíma að síldin brást. Stóð þá til að lækka síldarverðið um 24% og sagði ég þá við útgerðarmanninn að ekki litist