Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Sjómannadagsblašiš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Sjómannadagsblašiš

						98

SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ

A LEIÐ TIL LOWESTOFT

Smásaga eftir Atla Magnússon

Fyrsti vörubíllinn er kominn.

Hann er grár á litinn eins og

skipshliðin, eins og hafnar-

garðurinn, sjórinn og frostið. Mennirn-

ir sem híma inni í honum eru á ein-

hvern hátt líka gráir. Þarna uppi glymja

við sleggjuhögg dekkmannanna sem

farnir eru að taka ofan af lestunum.

Höggin berast til mín gegn um gjóstinn

meðan ég rogast með Garrardinn upp

bryggjunna.

Hér rétt fyrir ofan er bensínsala, en

mér finnst það langt samt, enda verð ég

að sveigja mig út á hlið á göngunni. Það

verða mér vonbrigði þegar í ljós kemur

að þarna er enginn fyrir til að afgreiða

bensínið, hvað þá að leiðbeina ókun-

nugum. í glugga á skúr, sem merktur er

olíufélaginu, má lesa af miða að aðal-

fundur kaupfélagsins hafi verið haldinn

fyrir viku. Þá er þarna auglýsing um að

einhverjum dansleik sé aflv^

I fyrstu verð ég var við ] á s. .1 óljósa

hreyfingu inni í moldarmekki sem þyrl-

ast upp í litlum hvirfilvindi skammt

undan og heyri slitur af mannamáli sem

kemur eitt andartak upp í eyrun á mér

með vindinum, en fýkur svo aftur á

öndverðri hviðu, þvíhér virðistblása af

mörgum áttum í senn. Loks sé ég að

þetta er hljómsveit, fjögurra manna

hljómsveit og hver um sig ber hljóðfæri

í öskju. Sá fremsti heldur á einhverju

sem gæti verið gítar. Án þess að ég yrði

á þá stansa þeir þegar þeir eru komnir á

móts við mig, eins og við hefðum átt

löngu ákveðið stefnumót hér í vindin-

um.

—  Ertu á Hvammánni, segir sá með

hljóðfærið, sem ég held vera gítar.

—  Já, ég er að leita að húsi hérna,

segi ég og lít allt í kring um mig, eins ég

eigi von á að koma auga á þetta hús,

sem ég þó hef aldrei séð.

—   Er það ekki Gautaborg? spyr

maðurinn.

—  Lowestoft. En þið vitið víst ekki

um konu hérna, sem heitir Alda?

Hljóðfæraleikararnir líta hver á ann-

an og reyna að koma þessari Öldu fyrir

sig. Einn þeirra man eftir einhverri Al-

dísi eða Ollu hér í plássinu. Það getur

ekki hafa verið hún? Nei, enda flutti

hún burt fyrir tveimur árum.

— Hún flutti hingað í haust, segi ég.

—Maðurinn hennar heitir Jóhann.

Ognúkannastallirvið. — HúnAlda

hans Jonna Friðsemdar! Já, sei, sei.

Hvort þeir nú ekki kannast við stúlk-

una. Hún á heima í Sæmundarhúsinu

hér út frá og niður með og þangað er

um það bil fimmtán mínútna gangur.

Má ekki bjóða mér að verða samferða?

Þetta eru ræðnir menn og á leiðinni

kemur í ljós að sá sem ég hélt vera með

gítar er reyndar með banjó í töskunni,

en þeir hinir eru með harmonikkur og

saxófón. Það á að vera ball annað

kvöld, átti að vera í fyrri viku en var

frestað vegna miðstöðvarbilunar í fé-

lagsheimilinu. Er ég kannske músík-

ant? Nei, þeir spurðu aðeins af því að

þeir hafa tekið eftir að ég held á plötu-

spilara. Þeir kalla sig Mánakvartett-

inn.

Þetta tal um tónlist endist alla leið

niður að frystihúsinu, en hljómsveitin

kemur saman í kaffistofunni þar. En

húsið er ekki sjáanlegt þótt þessir menn

séu hér á leiðarenda. Hins vegar er

sjálfsagt að fylgja mér upp á hæð hér

rétt hjá, en þar kemur Sæmundarhúsið

í ljós. Sá með banjóið velst til fylgdar-

innar. Á leið upp brattann fræðir hann

mig á að því ver finni ég Jóhann ekki

heima. Báturinn er í útilegu og ekki

von á honum á næstunni. Hins vegar

ætti ég að finna konuna hans heima.

Fylgdarmaður minn hefur stöku sinn-

um séð hana á böllum hér. Veit ég

nokkuð hvernig hún kann við sig þarna

hjá þeim? Nei, auðvitað ekki, fæstum

er gefið um að úttala sig um tengda-

fólk. Loks erum við komnir og ég tek í

höndina á honum, en doka þegar ég sé

í augunum á honum að hann ætlar að

segja eitthvað mikilvægt við mig. —Þú

mátt ekki misvirða það, en ég veit vel

að þú ert ekki með plötuspilara í tösk-

unni, segir hann. — Við skiljum þetta

hér, því við erum flestir sjómenn líka.

En mig langar að mega hnippa í þig

þegar þið stoppið hérna næst og þú

skalt ekki skaðast á því." Ég svara

engu, en hann brosir þýðingarfullu

brosi og er farinn.

Ég stend kyrr um stund og liðka

stirða og hálfdofna fingurnar. Fram-

undan er aflíðandi brekka, sem nær

niður að malarkambi ofan við fjöruna,

sem teygir sig inn í fjarskann. Á hægri

hönd opnast úlfgrátt haf, sorfið báru-

skara í frálandsvindi, en á vinstri hönd

breiðast út móar og hrjóstur, sem

hverfa í frostmóðu lengst burtu. Næst

landinu andæfa einhverjir fuglar á móti

öldunni. Við fæturna á mér svigna

sölnuð strá í gjóstinum.

— Það er þarna, hafði fylgdarmað-

ur minn sagt. Húsið stendur kippkorn

ofan við malarkambinn, aleitt í tveimur

víðáttum, hafinu og landinu. Það er

svart, ef til vill klætt tjörupappa, mjótt

og sýnist hátt, þótt það sé ekki stórt —

ein hæð á steyptri undirstöðu og gamal-

dags ris, snarhallandi. Ekkert útihús

eða skúrar sjást þarna í kring, en opinn

bátur liggur á hliðinni undir kambinum

og snýr þóftum í átt til mín.

Þegar ég kem fyrir horn og undan

húsgaflinum er ég nærri dottinn í fangið

á gamalli konu. Þegar ég hef náð mér

aftur sé ég að þetta er manneskja á

áttræðisaldri, lág og mikil um sig og

hún heldur á svörgulslega stóru kúbeini

í höndunum. Hún hefur næstum rekið

það í andlitið á mér.

Við nemum bæði staðar og hún er

augljóslega ekki minna hissa en ég,

horfir á mig smáum og tortryggnum

augum, er mjög móð og andar ótt og

títt í gegnum nefið, því varirnar eru

samanklemmdar í hvarfi uppi í tann-

lausum munninum.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88
Blašsķša 89
Blašsķša 89
Blašsķša 90
Blašsķša 90
Blašsķša 91
Blašsķša 91
Blašsķša 92
Blašsķša 92
Blašsķša 93
Blašsķša 93
Blašsķša 94
Blašsķša 94
Blašsķša 95
Blašsķša 95
Blašsķša 96
Blašsķša 96
Blašsķša 97
Blašsķša 97
Blašsķša 98
Blašsķša 98
Blašsķša 99
Blašsķša 99
Blašsķša 100
Blašsķša 100
Blašsķša 101
Blašsķša 101
Blašsķša 102
Blašsķša 102
Blašsķša 103
Blašsķša 103
Blašsķša 104
Blašsķša 104
Blašsķša 105
Blašsķša 105
Blašsķša 106
Blašsķša 106
Blašsķša 107
Blašsķša 107
Blašsķša 108
Blašsķša 108