SJÓMANNADAGSBLADID 27 Ég held að við höfum verið um 60 sem mættum og sem von er varð mað- ur að spyrja marga hver hann eða hún væri. Það er margt sem er að brjótast um í okkur varðandi hvað við eigum að taka okkur fyrir hendur þegar starfi lýkur. Þótt víst kvíði maður dálítið fyrir því að hætta að vinna þá gerir feginleiki jafnframt vart við sig, því þetta hefur verið erilsamt. Ég á mikið af bókum sem ég hef haft áhuga á að lesa, en ekki gefist tími til þess. En ég hef nú ekki þrek til að sitja klukku- stundum saman við bóklestur og sjálf- sagt verður einhver bók eftir ólesin þegar yfir lýkur. En árin á Hrafnistu hafa verið ver- ið góður tími, svona yfirleitt, þótt alltaf gerist ýmislegt á langri leið sem manni ekki fellur. En því reynir mað- ur að gleyma en halda því góða til haga. Allt fram til þessa vandist gamla fólkið á að leita til okkar Sig- ríðar með ýmsan vanda, meiri og minni, sem húsbænda á heimilinu. Þegar um fjármál var að ræða var leit- að til mín og ég reyndi að hafa alltaf tíma handa þessu fólki. En nú þann 1. febrúar 1998 varð ég loks að taka upp viðtalstíma. Áður fannst mér ekki hægt að hafa lokað ef einhver gamall einstaklingur kom að dyrunum en nú hafa skrifstofustúlkurnar heimtað að ég breytti þessu og svo varð að vera. Þetta er sjálfsagt tímanna tákn," segir Kolbeinn og brosir við. Hér með látum við þessu stutta spjalli við hjónin Kolbein Helgason og Sigríði Jónsdóttur lokið. Þeim fylgja þakkir ótal margra sem notið hafa þeirra hlýja viðmóts í áranna rás og við hjá Sjómannadagsblaðinu ósk- um að þau megi njóta þeirra daga sem í hönd fara sem allra best. AM Sendum öllum sjómönnum árnaðaróskir á hátíðisdegi þeirra StMitrOfKLogjw ^©mm©M ík ©@D E[ML Vesturgötu 16-101 Reykjavík - Sími 551 4680 / 551 3280 Skoðun og viðgerðir gúmmíbáta allt árið Önnumst einnig viðgerðir á flot- og björgunarbúningum. GÚMMÍBÁTAÞJÓNUSTAN Eyjarslóð 9 Örfirisey Sími: 551 4010