32 SJÓMANNADAGSBLADIÐ Flutningi sjómannamenntunarinnar mótmælt Frá stofnfundi Hollvinasamtaka Sjómannaskóla Islands þann 26. nóvember 1997 Sjómannadagsblaðið fjallar að þessu sinni ítarlega um menntunar- mál sjómanna. Þótt víst sé það vel viðeigandi á afmælisári, þá gefur sú umræða sem orðið hefur um málefni Sjómannaskólans enn rík- ari ástæðu til þess. Hér er því rætt við skólameistara beggja skólanna og ennfremur formann Hollvina- samtaka Sjómannaskóla íslands. Þótt meðgöngutími Hollvinasam- takanna væri sem kunnugt er skammur, þá kom það ekki í veg fyrir að þegar við fæðinguna voru þau voldug og sterk. A stofnfundin- um var hátíðarsalur Sjómannaskól- ans þétt setinn og umsóknir dreif að og ekki síst var bragð að umsókn- um sjómanna á hafi úti er á fund- inn bárust. Síðan hefur Hollvina- samtökunum sífellt vaxið fiskur um hrygg og það hve marga velunnara skólinn hefur reynst eiga utan sjó- mannastéttarinnar vekur athygli. Hér fer á eftir frásögn af því sem fram fór á stofnfundinum og von- um við að stemmningin skili sér til lesenda okkar. Það vakti þjóðarathygli þegar svohljóðandi auglýsing kom í útvarpi og sjónvarpi þann 26. nóvember sl.: Stofnfundur Hollvinasamtaka Sjó- mannaskóla Islands verður haldinn í hátíðasal skólans í kvóld kl. 20.30." Að baki þessarari auglýsingu stóð sér- stök undirbúningsnefnd sem unnið hafði að stofnunini, en í henni voru þessir: Ásgeir Guðnason, Björn Herberts- son, Elís Jónsson, Garðar Pálsson, Georg Árnason, Guðmundur Hall- varðsson, Guðmundur Kjærnested, Guðmundur Lýðsson, Gunnar Gutt- ormsson, Gunnar Hafsteinsson, Hannes Þ. Hafstein, Haukur Óskars- son, Haukur Þórhallsson, Hálfdan Henrysson, Helgi Hallvarðsson, Jó- hann Ólafur Arsælsson, Kristján Páls- son, Magni Sigurhansson, Unnþór Torfason, Þorsteinn Gíslason og Ævar Guðmundsson. Þungavigtarmenn uppskáru laun erfiðisins Þegar Hálfdan Henrysson setti fundinn var augljóst að þessir þunga- vigtarmenn höfðu uppskorið laun erf- iðis síns. Hátíðarsalurinn var þétt set- inn og nemendur beggja skólanna viku úr sætum fyrir eldri mönnum og röðuðu sér í þéttar raðir með báðum langveggjum salarins og í anddyrið við innganginn. Hálfdan bauð menn velkomna, lýsti ánægju með þann mikla stuðning sem hið þarfa málefni hefði fengið og bað að því búnu Krist- ján Pálsson alþingismann að taka við fundarstjórninni og Þráin Karlsson vélstjóra að gerast fundarritari. Fyrsta verk fundarstjóra var að lesa upp skeyti sem borist höfðu og byrj- aði hann á skeyti frá stjórn Fulltrúa- ráðs Sjómannadagsins í Reykjavík og Hafnarfirði, sem hljóðaði svo: Stjórn Fulltrúaráðs Sjómannadagsins í Reykjavík og Hafnarfirði lýsir yfir eindregnum stuðningi við stofnun Hollvinasamtaka Sjómannaskóla ís- lands. Á haustfundi fulltrúaráðsins 20. nóvember sl. hvar fulltrúar 11 stéttarfélaga sjómanna í Reykjavík og Hafnarfirði voru mættir, var öllum áformum um flutning sjómanna- menntunar úr Sjómannaskóla íslands við Rauðarárholt harðlega mótmælt. Þá lýsti fundurinn yfir að til vansa væri fyrir þjóð sem byggir afkomu sína á sjávarútvegi og siglingum, hve áfátt væri viðhaldi á menntasetri ís- lenskrar sjómannastéttar, Sjómanna- skóla íslands. Stöndum saman það er okkar afl gegn tilflutningi sjó- mannamenntunar úr húsnæði Sjó- mannaskóla íslands við Rauðarárholt. F.h. stjórnar og trúnaðarmannaráðs Sjómannadagsins í Reykjavík og Hafnarfirði. Guðmundur Hallvarðsson." Stendur hátt með stoltar- ráð..." Þá las fundarstjóri skeyti og sím- bréf sem innihéldu ýmist hvatningar- orð eða inntökubeiðnir stundum hvort tveggja. Áberandi voru skeyti frá gömlum nemendum Sjómanna- skólans sem staddir voru á hafi úti og má nefna kveðjur frá skipstjórunum á hafrannsóknaskipinu Árna Friðriks- syni, varðskipinu Óðni, Akureyri-EA og Snæfugli-SU. Hollvinasamtök Há- skóla íslands sendu árnaðaróskir og óvænt ánægja var að því er Þórarinn Eldjárn rithöfundur hringdi og upp- lýsti að í Sjómannablaðinu Víkingi árið 1946 væri að finna tvö erindi eft- ir Kristján Eldjárn sem helguð eru Sjómannaskólanum, þótt hans sé þar ekki getið sem höfundar. Hefði hann ort þau þegar hann eitt sinn kom til Reykjavíkur og sá turn skólans gnæfa yfir Reykjavíkurbæ. Erindin eru á þessa leið: Stendur hátt með stoltarráð Stýrimannaskóli, horfir yfir lög og láð langt af sjónarhóli. Hrra þó við himin ber heiður þeirra tíma, er menn lærðu af sjálfum sér sjóinn við að glíma,