34 SJÓMANNADAGSBLADIÐ Mikið fjölmenni var á stofnfundi Hollvinasamtaka Sjómannaskóla Islands þann 26. nóvember sl. (Ljósm.: Björn Páls- son) Stjórn og fulltrúaráð samtak- anna Að þessu búnu var stjórn kjörin en hana skipa þeir Sigurður Hallgríms- son formaður, Guðmundur Ibsen varaformaður, Georg Árnason gjald- keri, Unnþór Torfason ritari og Gunn- ar Freyr Hafsteinsson meðstjórnandi. Þá voru eftirtaldir menn tilnefndir í fulltrúaráð Hollvinasamtaka Sjó- mannaskóla Islands: Páll Magnússon, Bragi Eyjólfsson, Aage Petersen, Þráinn Sigtryggsson, Guðlaugur Ketilsson, Sævar Örn Kristjánsson, Ásgeir Guðnason, Guð- mundur Lýðsson, Jóhann Ólafur Ár- sælsson, Ásgeir Sigurjónsson, Guð- mundur Kjærnested, Hannes Þ. Haf- stein, Kristján Pálsson, Guðmundur Hallvarðsson, Hálfdan Henrysson, Haukur Þórhallsson, Ævar Guð- mundsson, Helgi Hallvarðsson, Grét- ar Mar, Berent Th. Sveinsson og Þórður Þórðarson. Kosningu bæði stjórnar og fulltrúa- ráðs var fagnað með dynjandi lófata- ki. Menntasetur og sameiningar- tákn Að kosningu lokinni ávörpuðu þessir menn fundinn: Guðmundur Kjærnested frv. skipherra, Örnólfur Thorlasíus formaður Hollvinafélags framhaldsskóla á háskólastigi, Helgi Laxdal formaður Vélstjórafélags ís- lands, Guðjón A. Kristjánson formað- ur F.F.S.Í., Rannveig Tryggvadóttir og Sigurður Ágúst Kristinsson. Nú voru lesin upp drög að greinar- gerð, sem samþykkt var með ein- dregnu lófataki og er hún á þessa leið: Stofnfundur Hollvinasamtaka Sjómannaskóla íslands, haldinn í há- tíðarsal skólans miðvikudaginn 26. nóvember 1997, lýsir eindreginni andstöðu við fram komnar hugmynd- ir nefndar á vegum menntamálaráð- herra þess efnis að starfsemi Sjó- mannaskólans verði flutt í húsnæði við Höfðabakka í Reykjavík. Samtökin átelja það verklag að vegna þarfa annarra skólastofnana skuli Stýrimannaskólanum í Reykja- vík og Vélskóla íslands án nokk- urrar úttektar á húsnæðismálum þess- ara skóla stillt upp fyrir aðeins ein- um valkosti, þ.e. að flytja í húsnæði sem að mati stjórnenda beggja skól-