40 SJOMANNADAGSBLADID fjarskiptadeild og tölvudeild. Þetta gefur okkur vísbendingu um umfang- ið. Þá gegna samlíkjar (kailaðir herm- ar í V.I.) afar mikilvægu hlutverki við kennsluna í starfi beggja skólanna. Þetta eru mjög dýr tæki, en um það þýðir ekki að fást, þar sem ekki er tekið mark á sjómannaskóla sem ekki hefur yfir fullkomnum samlíkjum og hermum að ráða. Fyrsta siglingasam- líkinn fékk Stýrimannaskólinn árið 1975 og var hann endurnýjaður 1989. Vil ég geta um að nú hefur verið gerð- ur viðhaldssamningur til sex ára við norskt fyrirtæki, Kongsberg/Nor- control. Er að því mikill ávinningur, en vegna samningsins eigum við í vændum að fá þetta mikilvæga tæki endurnýjað til fullnustu á næsta ári. Með siglingaherminum geta nemend- ur okkar lært að sigla allt umhverfis landið og inn á fimm íslenskar hafnir, auk þess um Ermarsund, Gíbraltar- sund, Færeyjar og Eyrarsund og fleiri siglingaleiðir. Fiskveiðisamlíkinn fengum við 1991. Hann sýnir hvað gerist þegar nót eða trolli er kastað. Við höfum notið aðstoðar starfandi skipstjóra við kennslu á fiskveiðisam- líkinn og hefur til dæmis Guðmundur Jónsson skipstjóri á Venusi aðstoðað okkur dyggilega. Ég hef orðið var við að traust manna erlendis á okkur eykst þegar þeir heyra hvað og hvernig við kenn- um faggreinar, á siglingasamlíki og tæki. Það sýndi sig þegar við Vil- mundur Víðir Sigurðsson kennari og deildarstjóri vorum í Rotterdam á fyrra ári og ég hélt fyrirlestur um nám og kennslufyrirkomulag við Stýri- mannskólann og um kröfur til skip- stjórnarréttinda hér á landi. Eins og ég minntist á tengist skip- stjórnar- og vélstjórnamámið æ meir og kem ég þá enn að því hve mikil- vægt er að skólarnir séu undir sama þaki. Samvinnan er með miklum ágætum og meðal annars erum við skólameistararnir einhuga um að stefna beri að því að bjóða hér upp á tæknistúdentspróf. Hyggjumst við gera tillögu þar um og er það eitt af okkar samstarfsverkefnum, en sam- kvæmt framhaldsskólalögum mega skólar á framhaldsskólastigi gera til- lögur um viðbótarnám svo menn eigi kost á námi á háskólastigi. Það hyggj- umst við nýta okkur." Hús tileinkað sjómönnum Einstaklega fátæklegar fjárveit- ingar til viðhalds Sjómannaskóla- hússins og lóðarinnar, sem ekki er lokið 52 árum eftir að flutt var í hús- ið, eru alveg í öfugu hlutfalli við framlag íslenskra sjómanna. Þetta er auðvitað furðulegt í landi sem hefur fram á þennan dag fyrst og fremst lif- að á því sem úr sjónum kemur. Hins vegar leiðir þetta hugann að þeirri einstöku ræktarsemi sem gamlir nem- endur okkar hafa sýnt skóla sínum. Arlega hafa þeir fjölmennt á skólaslit- in og fært okkur dýrar gjafir. A hund- rað ára afmælinu 1991 gaf L.I.U. okk- ur 8 milljónir króna til kaupa á fisk- veiðisamlíkinum. En hvað eftirminni- legast var þó hvernig staðið var að stofnun Hollvinasamtaka Sjómanna- skóla Islands 29. nóvember sl., þegar flutningurinn kom til tals sl. haust. Skörulegur málflutningur forvígis- manna þeirra og stuðningsyfirlýsing- ar hvaðanæva að yljuðu okkur sem hér störfum um hjartarætur. Menn sögðu þetta er okkar hús," og vöktu athygli allrar þjóðarinnar á hvað um var að vera. Því vil ég enda þetta spjall á því að færa Hollvinasamtök- um Sjómannaskólans bestu þakkir fyrir liðveisluna. Við erum ánægðir hér og viljum að húsið sé nýtt í sam- ræmi við tilgang og hugsjónir þeirra sem stóðu að byggingu þess. I góðri samvinnu við nágranna okkar í KHÍ og Þóri Ólafsson rektor KHI lítum við björtum augum fram á veginn og álítum að Björn Bjarnason menntamálaráðherra hafi réttilega tekið af skarið um að Stýrimannskól- inn í Reykjavík og Vélskóli íslands verði hér eftir sem hingað til í Sjó- mannaskóla íslands. Við treystum því og væri annað enda ekki við hæfi." AM Jíafnarjjarðarbr sendir öllum íslenskum sjómönnum árnaðaróskir á fiátíðisdegi fyeirra