SJÓMANNADAGSBLADID 45 en þau hlýtur hann ekki nema hann sé orðinn vélfræðingur, þ.e. hafi lokið fjórða stigi og sveinsprófi í málmiðn- aðargrein. Þá hefur hann öðlast rétt- indi á 1500 kW vél og þar yfir, sam- kvæmt íslenskum atvinnuréttindalög- um. Af hálfu LÍÚ hefur verið tals- verður þrýstingur á að hækka þetta mark. Menn verða að hafa hugfast að góður tæknimaður eykur öryggi bæði skips og áhafnar og stuðlar að aukinni framleiðni og bættum rekstri. Einnig þarf mikla handverksþekkingu, en hún hefur nú færst í það horf að auk smíðakunnáttu er mikilvægt að vél- stjóri geti tekið í sundur, sett saman og byggt upp vélar. Auk þess veitir stýrt viðhald ómælt öryggi." Endurnýjunar þörf á þriggja til fjögurra ára fresti Ég vil minnast á enn einn lið í náminu hjá okkur sem farið hefur vaxandi, en sá liður er stýrt viðhald. Þá er bæði um að ræða tímastýrt við- hald og ástandsstýrt viðhald, en í fyrra tilfellinu er skipt um hlut eftir tiltekinn tíma og í því síðara er skipt um hann þegar athugun leiðir í ljós að hann hefur lokið sínu hlutverki og bil- un lfkleg innan tíðar. í stýrðu viðhaldi gegna tölvur miklu hlutverki sem verkfæri, svo og í lagerfærslu og öðru. Til þessa eru fyrir hendi ákveð- in forrit. Ýmis kennsla hér gengur líka í síauknum mæli út á það að kenna mönnum að nýta sér tölvurnar og má þar nefna teiknikennsluna, vél- fræðikennsluna kælitæknikennsluna, rafmagnsfræðikennsluna og hermana, sem stjórnað er af tölvum. Verulegu fjármagni hefur verið varið til þess að endurnýja þennan tölvukost á undan- förnum árum, en hann þarf að endur- nýja á þriggja til fjögurra ára fresti. Þetta kemur ekki til af sliti, heldur koma jafnt og þétt fram stærri og viðameiri forrit sem útheimta stærri tölvur með meira minni og meiri vinnsluhraða. Ég tel að við höfum gert okkar ítrasta til þess að fylgja þessari þróun eftir, en takmarkað fjár- magn hefur skorið okkur þröngan stakk. Fyrir um það bil fjórum árum byggðum við upp mjög fullkomið kælikerfi sem einmitt er tölvustýrt og veitti Danfoss okkur mikilsverðan stuðning við það, svo og vélsmiðjan Héðinn og kælismiðjan Frost. Þessi búnaður hefur nýst okkur ákaflega vel í kælitæknikennslunni, ekki síst þeim hluta sem snýr að stýringu og still- ingu, eða reglun," eins og það kallast einnig. Þetta er og mikilsverður liður í verklegu kennslunni. Hér eru aðeins fáein fyrirtæki nefnd af þeim fjöl- mörgu sem hafa veitt okkur stuðning við að byggja upp verklegu kennsluna í skólanum. Erum við starfsmenn skólans mjög þakklátir þeim fyrir- tækjum sem rétt hafa okkur hjálpar- hönd." Hér viljum við heist vera Ég minntist á í upphafi máls míns að hugarfarsbreyting þurfi að koma til gagnvart sjómannamenntuninni og á það einnig við um ráðamenn. Við þurfum á tjármunum að halda en skólarnir hér hafa því miður lengi ver- ið í fjársvelti. Satt að segja skilur eng- inn ástæðuna og þá síst aðrar þjóðir, sem vita eins og allir að við Islending- ar lifum fyrst og fremst á fiski. Svo er rætt um það á tyllidögum að auka þurfi menntun sjómanna og verk- menntun almennt og borið lof á stétt þeirra á Sjómannadaginn. Mál er til komið að menn fari að sýna að hugur fylgi máli. Ég vil enda þetta spjall á að óska öllum sjómönnum til hamingju á 60 ára afmæli Sjómannadagsins, svo og öðrum velunnurum skólans. Og ekki má ég gleyma Hollvinasamtökum Sjómannaskóla íslands, sem hafa veitt okkur ómetanlegan stuðning í baráttunni fyrir því að við fáum að yera áfram hér í húsi Sjómannaskóla íslands. Hér viljum við helst vera og sjá námið byggjast upp hér, eins og til var ætlast þegar Sjómannaskólinn var reistur fyrir ríflega 50 árum. Stuðn- ingur Hollvinasamtakanna, sem gert hafa þetta að helsta baráttumáli sínu, mun hafa sitt að segja til þess að svo megi verða, okkur, sjómannastéttinni og allri íslensku þjóðinni til heilla." AM Sendum öllum íslensfaim sjómönnum árnaðaróskir á Rátíðisdegi \\eirra ^Æ ® Islenskar l sjávaraf urðir. íslenskai r sjávarc if urðir hf.