52 SJÓMANNADAGSBLADID ur, en þar var þá skólastjóri Jakob Kristinsson fræðslumálastjóri." Á Inger Elisabet En sumarið 1931 má segja að siglingasaga mín hefjist. Þá réði ég mig á norskan dall sem hét Inger Elisabet og var 2000 tonn að stærð. Við fluttum herta þorskhausa sem við tókum víðsvegar á Norðurlandi og fluttum til Voxvyg á Molöy í Noregi. Það voru einhver ókjör sem skipið tók af þorskhausum og þeim fylgdi mikið af músum og maðki. Salti var stráð á þröskulda skipsins, svo maðkurinn kæmist ekki í íbúðirnar, en ógeðsleg- ur var hann. Skipið lá úti á þegar ég kom um borð og þegar til kom var engin dýna í kojunum, svo ég varð að liggja á fjölunum til Noregs. Mýsnar voru á ferli um allt og fannst mér mikill ami að þeim. Eg var skráður léttmatrós, en til þess átti maður að hafa siglt sem und- irháseti í að minnsta kosti tvö ár og kunna alla vinnu. Ég var settur við i "^^rafev «b! flt « *' jf! h K Tryggvi Blöndal: Vissulega voru þessar ferðir eins konar sumarauki hjá okkur og gaf þessu líf og lit sem ekki gleymist." (Ljósm.: Sjómdbl. AM) stýrið og gekk heldur böslulega að halda dallinum á strikinu. Stýrimaðurinn tók þá við og kom skipinu í rétt horf, en þegar útaf sló þá sagði hann þetta sýnishorn af því hvernig ég stýrði. Að því kom samt að við Inger sættumst og hún fór að hlýða mér sæmilega. Þegar við höfðum losað beinin sigldum við til Svalbarða og tókum kol. Það var nokkuð nýstárlegt fyrir mig, því kolin komu í körfum eftir stálþræði ofan úr fjöllunum. Með okkur til Svalbarða fluttum við hey og matvæli til ísafjarðar á Svalbarða, en þar áttu Norðmenn þrjú námuþorp. I fyrstu ferðinni frá Svalbarða til Noregs með kol komum við til Si- egerfjarðar sem er smábær fyrir norð- an Lófót. Sennilega hefur þetta verið á laugardagskvöldi, því dansleikur var haldinn þarna um kvöldið, í blíð- skaparveðri og á dansleikinn fóru flestir skipverjar nema ég sem var settur vaktmaður um borð. Eitthvað hafa þeir víst haft orð á að íslending- ur væri á skipinu, því stýrimaðurinn kom og sótti mig til að sýna fyrirbær- íbúð þeirra Tryggva og Margrétar prýðir fjöldi listaverka eftir Tryggva og heldur hann hér á einu þeirra. (Ljósm. Sjómdbi: AM)