SJÓMANNADAGSBLAÐID 65 í Kaupmannahöfn gekk hann á fund sjómannasamtaka og einnig mun fé- lag slökkviliðsmanna hafa veitt hon- um aðstoð, en með hjálp þessara dönsku félaga komst hann til Hollands. Stjórn ITF boðaði til fund- ar um mál Sjómannafélags Reykja- víkur. Sendi skeyti til sambandsfélaga og fór þess á leit að þau hindruðu af- greiðslu íslenskra togara, sem mann- aðir væru verkfallsbrjótum. Ennfrem- ur sneri ITF sér til þingmanns kjör- dæmis þess er hafnarborgin Leith taldist til. Var hann beðinn að bera fram fyrirspurn á breska þinginu (Parliament) og óska vitneskju um hver hefði borið ábyrgð á því að Jóni Bach, fulltrúa Sjómannafélagsins, var meinuð landganga í Bretlandi. Þing- maðurinn var aðlaður seinna, Shinewell lávarður orkumálaráðherra Bretlands. Til þess kom þó eigi að fyrirspurn- in væri borin fram. Rétt í sama mund kom skeyti frá Sjómannafélagi Reykjavíkur um að samningar hefðu tekist við útgerðarmenn. í september 1998 eru 75 ár liðin frá inngöngu íslenskra sjómanna í fyrr- greind alþjóðasamtök. Fulltrúar sjó- manna, sem nú sitja alþjóðlegar ráð- stefnur á vegum samtaka sinna, mega gjarnan minnast þess að leiðin var ekki greið fyrir frumherja samtak- anna. Jón Bjarnason, sá sem fyrr var nefndur, einn hinn vaskasti í forystu- sveit sjómanna, var t.d. settur á svart- an lista hjá útgerðarmönnum fyrir þátt sinn í baráttu sjómanna. Hann varð að höfða mál til þess að sækja laun sín sem lifrarbræðslumaður, en hásetar kusu hann til þeirrar virðingarstöðu. Jón vann mál sitt fyrir báðum dóm- stigum, undirrétti og Hæstarétti. Fyrir nokkru sneri ég mér til dr. Bjarna Jónssonar fv. yfirlæknis og nnti hann álits á kjaradeilu sjómanna og þætti föður hans, Jóns Bjarnasonar. Dr. Bjarni sagði m.a.: Eg trúi að þetta verkfall hafi skipt sköpum fyrir verkafólk í landinu. Þá voru verkföll rneð öðrum hætti en nú, nær því að vera borgarastyrjöld. Þá var margur vanginn þunnur í Reykjavík og sjálf- sagt víðar, og þegar svo var satimað að þeim, að þeir fóru í stríð, þá var það í alvöru." Sjómenn fjölmenna til varnarbaráttu. Togarar Sleipnis hf. við bryggju. Vatns- bátur Reykjavíkurhafiiar við skipshlið. Emanuel Shinwell tók að sér að beraframfyrirspum í breska þinginu í septem- ber 1923. Hvers vegna varJóni Bach ekki leyfð landganga ÍLeith?" Shinwell stendur hér íaftari röð við hlið konu sinnar. Hann er berhöfðaður. ffremri röð situr Ramsey MacDonald er um skeið var forstisráðherra Verkamannaflokks- ins. Hann féll seinna í þingkosningum fyrir Shinwell. Myndin er tekin íjíiní- mánuði 1923.