SJÓMANNADAGSBLADID 79 og stóðu þeir sig mjög vel, náðu öðru sæti. Virðist þátttaka sjómanna í íþróttum dagsins vera að aukast og setur það mikinn svip á hátíðarhöldin. Úrslitin í fótboltanum urðu þessi: 1. Haraldur Kristjánsson 7 stig. 2. Lómur 6 stig 3. Rán 5 stig 4. Venus 2 stig 5. Ymir 1 stig Kl. 08.00 á sunnudagsmorgun voru fánar dregnir að húni og kl. 10.00 lék Lúðrasveit Hafnarfjarðar við Hrafn- istu. Kl. 10.45 var lagður blómsveig- ur við minnisvarða um horfna sjó- menn við Víðstaðakirkju og gerði það Ingigerður Benediktsdóttir. Séra Sig- urður Guðmundsson flutti bæn. Sjómannamessa var í Hafnarfjarð- arkirkju og messaði séra Þórhallur Heimisson. Ritningargreinar las Bergþór Ingibergsson. Hópur barna aðstoðaði við messuna og séra Þór- hildur Ólafs. Gömlum úthafsrápara, sem þekkir betur ýmsar aðrar stofnan- ir en kirkjur og bænahús, þótti mess- an sérstæð og eftirminnileg. Kl. 13.00 var skemmtisigling fyrir börn út á fjörðinn og sá Björgunar- sveit Fiskakletts um skipulagningu og öryggisgæslu. Kl. 14.00 var hátíðardagskráin sett við Tónlistarskólann af formanni dagsins, Karel Karelssyni. Ávörp fluttu: Fulltrúi Slysavarnardeildarinn- ar Hraunprýði, Kristín Gunnbjörns- Götustrákar róðrarsveit: Axel Jónsson, Trausti Hansson, Björn Jóhannsson, Stefán Jökull Jakobsson, Jón E. Guðlaugsson, Albert Jakobsson, Jón Valgeir Williams. Stúlkumar í róðrarsveit frá Sjávarfiski. Því miður barst enginn nafnalisti frá þeim. Lið Ýmis, róðrarsveit: Stefán Bryde, Oddur Andrésson, Þröstur Andrésson, Jón Rögnvaldsson, Einar Hansson, Sveinn Albertsson, Asmundur Jónsson.