I 80 SJÓMANNADAGSBLADIO Börn aðstoða við Sjómannaguðsþjónustu. Séra Þórhildur Ólafs er þeim til halds og trausts. Grillaðar pylsur og kók, sem frystitogaramenn veittu á meðan fótboltakeppnin fórfram. dóttir. Fulltrúi útvegsmanna: Helgi Einarsson skipstjóri. Fulltrúi sjó- manna: Arthur Bogason formaður Fé- lags smábátaeigenda. Helgi Einarsson heiðraði aldraða sjómenn að þessu sinni. Heiðraðir voru: Garðar Ólafsson, Árni Bjarna- son, Zóphónías Ásgeirsson og Guð- jón Kristjánsson. Kristinn Ó. Karls- son netagerðarmeistari var sérstak- lega heiðraður með heiðurskrossi dagsins. Hann hefur verið nátengdur Sjómannadeginum í fjörutíu og fjögur ár og ætíð startað kappróðrarbátun- um. Manna lengst hefur hann því starfað að framgangi Sjómannadags- ins og verið sjómönnum innan handar með störfum sínum. Um langt skeið rak hann netagerðarverkstæði hér í bæ og eru þeir ótaldir sjómennirnir sem lærðu að fara með netanál hjá honum og taka í sína fyrstu kríu. Sumir gengu alla brautina og urðu sveinar í faginu. Sófus Bertelsson flutti ljóð og Bæj- arstjórinn í Latabæ skemmti börnum. Lúðrasveit Hafnarfjarðar lék milli at- riða á pallinum. Kynnir var Gestur Sigurðsson. Þyrla Gæslunnar kom og sýndi björgun úr sjó með aðstoð félaga úr Björgunarsveitinni Fiskakletti. Björn Thoroddsen kom og sýndi listflug, en það vekur ætíð mikla athygli. Úrslit í kappróðrinum urðu þessi: 1. Götustrákar 1.32.53 2. Ymir 3. Hringur 4. Venus 5. Trefjar Kvennasveit: 1. Sjávarfiskur 1.35.63 1.36.11 1.37.10 1.47.34 1.41.31 Haftindur í barnasiglingu Skipverjar á Ými unnu bikar þann sem skipshafnir keppa um og skip- verjar á Hring hafa unnið undanfarin ár. Götustrákar unnu Landsveitabikar- inn og Eyjapeyjabikarinn, sem veittur er fyrir besta tímann í kappróðrinum. Sjómannadagshófið hófst með borðhaldi á Hótel Sögu kl. 20.00. Örn Árnason, Karl Ágúst Úlfsson, Sigrún Eva, Egill Ólafsson og Tamlasveitin skemmtu fram eftir nóttu við mikinn fögnuð. Veislustjóri var Jón Kr. Gunnarsson.