SJÓMANNADAGSBLADID 81 Afreksmerki veitt vegna björgunar Forseti íslands heiðrar tvr áhafnir þyrlunnar TF-LÍF. Frá vinstri: Forseti Islands, Kristín Gísladóttir (fyrir hönd Elí- asar Arnar Kristjánssonar), Oskar Skúlason, Ágúst Eyjólfsson, Auðunn F. Kristinsson, Benóný Asgrímsson, Friðrik Sig- urhergsson, Hermann Sigurðsson, Hilmar Þórarinsson, Hjálmar Jónsson, Jakob Ólafsson, Óskar Einarsson og Páll Halldórsson. Þann 1. maí á fyrra ári afhenti for- seti íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, tveimur áhöfnum á þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, afreks- merki hins íslenska lýðveldis við há- tíðlega athöfn á Bessastöðum. Afreks- merkin voru veitt vegna björgunar samtals 36 skipverja á þremur skip- um, Víkartindi, Dísarfelli og Þorsteini GK, dagana 5., 9., og 10. mars 1997. Áhafnir þyrlunnar skipuðu eftir- taldir tíu menn: Benóný Ásgrímsson flugstjóri, Páll Halldórsson flugstjóri, Hermann Sigurðsson flugmaður, Jak- ob Ólafsson flugmaður, Auðunn F. Kristinsson stýrimaður og sigmaður, Hjálmar Jónsson stýrimaður og sig- maður, Hilmar Æ. Þórarinsson flug- virki og spilmaður, Ágúst Eyjólfsson flugvirki og spilmaður, Friðrik Sigur- bergsson læknir og Óskar Einarsson læknir. Forseti íslands heiðraði einnig minningu Elíasar Arnar Kristjánsson- ar bátsmanns á varðskipinu Ægi, en hann lét lífið við tilraunir til að bjarga skipinu Víkartindi og áhöfn þess þann 5. mars 1997. Veitti forseti íslands Elíasi Erni post mortem" afreks- merki hins íslenska lýðveldis úr silfri. Var merkið afhent eftirlifandi konu hans og börnum til varðveislu. Eigum rafgeyma í allar stærðir bifreiða og vinnuvéla. Athugum hleðslu og ástand rafgeymis ykkur að kostnaðarlausu. Heimsendingaþjónusta í Hafnarfirði og Garðabæ. RAFCEYMASALAN Dalshrauni 1 Sími 565 4060