SJÓMANNADAGSBLADID MINNING Pétur Sigurðsson Fæddur 10. júní 1911 Dáinn 8. febrúar 1998 Landhelgisgæsla íslands var stofnuð upp úr árinu 1920, en frá ár- inu 1930 til ársins 1952 höfðu Skipaútgerð ríkisins og Landhelgis- gæsla Islands sameiginlega stjórn er varðaði daglegan rekstur varðskip- anna, en yfirstjóm var frá upphafi og er enn í dag í höndum dóms- málaráðherra. Árið 1952 var Land- helgisgæslunni fenginn sérstakur stjórnandi og hún stjórnunarlega að- skilin frá Skipaútgerð ríkisins. Pétur Sigurðsson, sjóliðsforingi frá Hrólfsskála á Seltjarnarnesi, var ráðinn forstjóri Landhelgisgæslunn- ar. Starfsmenn Gæslunnar tóku hon- um fagnandi og almenningur sá að hér var stigið mikið gæfuspor. Pétur Sigurðsson hafði staðgóða þekkingu á þessum málum og þar að auki góða menntun, sem hæfði þessu hlutverki. Hann hafði sinnt störfum bæði í danska sjóhernum og íslensku Landhelgisgæslunni. Pétur hafði auk þess, sem að framan getur, starfað við sjómælingar, sem var og er veigamikill þáttur í störf- um Landhelgisgæslunnar. Hér var mikið verk að vinna og nýjar leiðir að fara. í frumskógi rík- isfjármála og ríkisafskipta var og er villugjarnt. Pétur skildi hlutverk sitt rétt frá byrjun og var tilbúinn að axla þá ábyrgð sem starfinu fylgdi. Öll mál voru brotin til mergjar en ekki ýtt til hliðar og öðrum ætluð. Framsýni og fyrirhyggja einkenndu öll hans stjórntök enda árangurinn eftir því. Eins og öllum er ljóst, sem til þekkja, er starf forstjóra Landhelg- isgæslunnar bæði ábyrgðarmikið og annasamt. Öll mál fengu ítarlega umfjöllun og voru grannskoðuð og ráða leitað hjá færustu sérfræðing- um, áður en lokákvörðun var tekin. Pétur Sigurðsson stóð aldrei ráð- þrota gagnvart neinu verkefni, og taldi aldrei eftir sér að leggja nótt við dag í starfi sínu og var alltaf reiðubúinn að ræða við starfsmenn Landhelgisgæslunnar á hvaða tíma sólarhrings sem var. I stjórnartíð Péturs var fiskveiði- landhelgin færð út þrisvar sinnum, í 12, 50 og 200 sjómílur. Allar þessar útfærslur kölluðu á þrotlausa vinnu fyrir forstjóra Landhelgisgæslunnar, sem og aðra starfsmenn hennar. Þá voru varðskipin Albert, Óðinn, Ægir og Týr smíðuð í forstjóratíð hans. Pét- ur var óþreytandi í leit að nýjum hug- myndum varðandi smíði þessara skipa. Hann reyndi með öllum ráðum að tryggja öryggi áhafnanna og bæta sjóhæfni skipanna. Reynsla fyrri ára var yfirfærð frá einni nýsmíði til ann- arrar. Öll þessi vinna skilaði betri og traustari skipum. Eigi verður svo skilið við þessa upptalningu, að ekki verði minnst á klippurnar landsfrægu. Segja má að hafi einhver einn hlutur skipt sköpum í vörslu fiskveiðilandhelginnar, þá voru það klippurnar. Pétur Sigurðsson átti mikinn heiður að þeirri uppfinn- ingu ásamt öðrum en að baki hennar lágu margar andvökunætur og ómæld vinna, oft eftir annasöm dagleg störf. Að frumkvæði Péturs Sigurðssonar var kennsla undir skipstjórapróf á varðskipum ríkisins tekin upp í Stýri- mannaskóla Islands árið 1953 og fyrstu nemendurnir brottskráðir um vorið sama ár. Pétur beitti sér alla tíð fyrir aukinni menntun starfs- manna og þjálfun, þótt fé til slíkra mála væri af skornum skammti. Árið 1955 eignaðist Landhelgis- gæslan sína fyrstu flugvél, Katalínu- flugbátinn TF-RÁN. Reyndar hafði Pétur látið nota leiguflugvélar til gæslustarfa strax fyrstu árin eftir að hann tók við stjórn Landhelgisgæsl- unnar. Uppbygging flugflotans var honum einkar hugstæð. Hann sá strax hvernig flugvélar og varðskip gátu unnið saman að vörslu fisk- veiðilandhelginnar. Pétur Sigurðsson stóð aldrei ráð- þrota frammi fyrir neinu verkefni. Lausn varð að finnast, lausn sem treysti innviði Landhelgisgæslunnar og tryggði framþróun hennar. Þann 1. september 1981 lét Pétur Sigurðsson af störfum sem forstjóri Landhelgisgæslunnar eftir 29 ára farsælt starf. Margs er að minnast frá þessu viðburðaríka tímabili. I stuttri minningar- og kveðjugrein er ekki hægt að nefna nema fátt eitt, þegar fjölhæfur forystumaður á í hlut. Mörgum er í minni hin létta og frjálslega framkoma Péturs og ekki síður skemmtilegar og fræðandi frá- sagnir hans af mönnum og málefn- um. Hann hafði mjög góð tök á að umgangast starfsmenn Landhelgis- gæslunnar og leysti vel og farsæl- lega úr þeim málum sem vörðuðu þá. Fyrrverandi og núverandi starfs- menn Landhelgisgæslunnar þakka Pétri Sigurðssyni fyrir samfylgdina í blíðu og stríðu. Við sendum eftir- lifandi eiginkonu hans, frú Ebbu Sigurðsson og tveimur sonum þeirra, innilegar samúðarkveðjur. F.h. ÖLDUNGARÁÐSINS félags fyrrum starf'smanna Landhelgisgslu íslands. Árni E. Váldimarsson ritarí.