SJÓMANNADAGSBLADID 93 Skipti enguin togum að skipið hófst upp og tók flugið" Þór Vignir Steingrímsson, löngum yfirvélstjóri á varðskipinu Tý, segir hér frá ýmsu eftirminnilegu sem við hefur borið á löngum sjómannsferli. Hann er nú að láta af störfum eftir 28 ára starf hjá Landhelgisgæslunni Það var árið 1985 að Guðmund- ur Kjærnested skipherra á Tý minnti Þór Vigni Steingrímsson á að þeir hefðu þá setið saman til borðs í tíu ár. Það er vissulega löng samvera tveggja manna á sama skipi, og átti Þór Vignir þá samt eft- ir að vera á Tý í tólf ár til viðbótar, en hann hefur verið yfirvélstjóri á skipinu frá því er það var byggt. Þegar þetta er skrifað er hann um það bil að láta af störfum eftir 28 ára störf hjá Landhelgisgæslunni og 43 ára sjómennsku. Sjómanna- dagsblaðið bað Þór Vigni að rekja fyrir lesendum sínum eitt og annað sem á dagana hefur drifið á þessum langa tíma og af ýmsu reyndist að taka, eins og vænta mátti. Hann byrjaði til sjós á togurum árið 1954, og var togaramaður í tvo áratugi, en þá réði hann sig til Landhelgis- gæslunnar og hefur verið í þjónustu hennar síðan. Hann býr nú ásamt konu sinni, Magneu Jónínu Þor- steinsdóttur, að Arahólum 2 í Reykjavík. Ég fæddist að Spítalastíg 6 í Reykjavík þann 28. febrúar 1933 og var ég yngstur sex systkina, þriggja bræðra og þriggja systra. Foreldrar okkar voru þau Steingrímur Magnús- son sjómaður og fiskmatsmaður í Reykjavík og kona hans Vilborg Sig- þrúður Vigfúsdóttir," segir Þór Vignir. í föðurættina er ég Reykvíkingur, því bæði faðir minn og afi voru reyk- vískir sjómenn, en móðurættin er komin úr Álftaveri í Vestur-Skafta- fellssýslu. Pabbi var á sjó allt fram til 1950 eða svo, en hann var lengst af á togurunum gamla Helgafelli og síðar nýja Helgafelli, sem Skúli Thorodd- sen gerði út. 1940 flutti rjölskyldan svo að Lokastíg 19 og þaðan á ég Þór Vignir Steingrímsson: Eg kem til með að sakna Týs, sem ég hefverið svo nátengdur alltfrá því er hann var í smíðum." (Ljósm.: Sjómdbl. AM)