Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Sjómannadagsblašiš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Sjómannadagsblašiš

						102

SJÓMANNADAGSBLAÐID

Breskum vopnum og brotsjóum ögrað

Pétur Kr. Bjarnason segir frá viðburðaríkustu siglingunni af 30

sem hann fór yfir hafið á stríðsárunum

Það er vetur á Isafirði og hallar að

jólum árið 1941. Það er stríð í heimin-

um og þýskir kafbátar og flugvélar

skjóta á íslenska fiskimenn hvar sem

til þeirra næst, jafnt við strendur

landsins sem á úthafinu. Richard

hafði komið úr söluferð um mánaða-

mótin nóvember og desember. Það

hafði verið ógæftasamt undanfarið og

lítið aflast. Flutningaskipin, bæði inn-

lend og erlend, höfðu hópast saman

við bæjarbryggjuna og lágu þar í röð-

um hvert utan á öðru. Það var ekki

gæfulegt útlit með að fá fisk til flutn-

ings á næstunni, þar sem allir urðu að

fara í röðina, hvort sem um var að

ræða innlend skip eða erlend leigu-

skip frá hernumdu löndunum, aðal-

lega frá Noregi, Danmörku og Frakk-

landi. Sömu fréttir var að hafa frá öll-

um stærri verstöðvunum.

Um vorið höfðu þýskir kafbátar

haft sig sérstaklega mikið í frammi

um manndráp og skipaeyðingar á

siglingaleiðinni milli íslands og Eng-

lands. Fyrst var ráðist á Fróða og

drepnir fimm menn. Þeim sem eftir

lifðu tókst að koma skipinu til hafnar

í Vestmannaeyjum. Næst hvarf

Reykjaborg, stærsti togari íslendinga,

í fyrstu með öllu, en síðar fundust

tveir menn á fleka sem gátu skýrt frá

atvikum. Pétursey fór frá fsafirði 10.

mars og sást síðast við St. Kildu og

hafði þá stefnu á Irska kanalinn og

hélt eðlilegri ferð og allt virtist vera í

lagi um borð. Þeir hafa því örugglega

verið komnir langleiðina að áfanga-

stað þegar þeir mættu örlögum sínum

vegna árásar kafbáts, eins og síðar

hefur komið fram. í ágústmánuði fór

Jarlinn frá Fleetwood áleiðis til Isa-

fjarðar með ellefu manna áhöfn og

hefur aldrei til hans spurst síðan.

Um vorið, þegar skipatöpin voru

sem mest, höfðu siglingar stöðvast og

legið niðri um tíma, meðan verið var

að koma skipulagi á þær, svo menn

fengjust til að hefja þær aftur. En það

varð að gerast, því allt atvinnulíf

hafði hreinlega stöðvast og allir flutn-

ingar að og frá landinu lágu niðri.

Loks var tekinn upp sá háttur að tog-

arar skyldu sigla í samfloti tveir og

tveir, en smærri flutningaskipin ráða

sínum ferðum, svo sem verið hafði.

Lagt upp í "skraptúr"

Richard var fyrsta skipið sem sigl-

di eftir stoppið og að lokinni þeirri

ferð fór skriðan af stað aftur.

Við fengum gefnar upp stefnur og

vegalengdir sem við áttum að fylgja í

alls konar krókaleiðum, sem hefðu

lengt siglinguna til muna og aukið

hættuna á að skemma fiskinn. Þessum

fyrirmælum var lítið fylgt en stefnan

sett frá nesi til ness og síðan látið arka

að auðnu.

Þegar svo var ástatt sem í þetta

skipti, þá fóru minni skipin stundum á

"skrap", eins og það þá var kallað.

Það er að segja að farið var á minni

útgerðarstaðina sem stærri skipin gátu

ekki sinnt vegna hafnleysis og fengið

sitt lítið af hverju, uns farmi var náð.

Það þóttu erfiðir og oft leiðinlegir túr-

ar og þar sem leið að jólum tóku fjöl-

skyldumenn sér frí. Skipstjórinn, Ey-

þór Hallsson og stýrimaðurinn Pétur

Þorsteinsson fóru báðir í frí til Siglu-

tjarðar og í stað þeirra komu Lárus Þ.

Blöndal, fyrrum skipstjóri hjá Eim-

skip og víðar, og Markús Sigurjóns-

son stýrimaður frá Reykjavík. Ymsir

fleiri fóru einnig í frí. Vélstjórar í

þessari ferð voru Bjarnleifur Hjálm-

arsson og Snorri Halldórsson og

kokkur var Pétur Friðsteinsson frá

Reykjavík. Hásetar voru Pétur

Bjarnason, Halldór G. Halldórsson

frá Bolungarvík og Gunnar frá Vatni,

en hann var frá Siglufirði og fyrrum

skipstjóri þar.

Við fórum frá ísafirði eftir miðjan

desember og héldum fyrir Horn og

inn á Húnaflóa áleiðis að Gjögri. Það

er óhrein leið um að fara og engin

glæsisigling í skammdegismyrkri og

byl með áttavitann og vegmælinn eina

að leiðarljósi, eins og þá var venjan.

A Gjögri kroppaðist eitthvað og síðan

var haldið til Steingrímsfjarðar og

þræddir allir smástaðirnir — Drangs-

nes, Hamarsbæli og Hólmavík. Hvar

sem nokkur trilla reri þótt sjálfsagt að

sækja hvað sem fékkst.

Eftir nokkurn tíma gekk út í norð-

austan átt á vestanverðu landinu og

auðséð að ekki yrði róið á þessum

stöðum á næstunni. Komið var um

hálffermi í skipið og því þörf á viðbót

sem fyrst. Þá voru engar veðurfréttir

nema á símstöðvunum.

Á símstöðinni á Hólmavík fréttum

við að gott veður væri á norðaustur-

landi og að skip sem verið hafði á

skrapi á því svæði væri að fylla og

ekki vitað um annað á slóðinni. Því

var fljótlega haldið af stað austur og

byrjað í Flatey á Skjálfanda og síðan

farið til Húsavíkur. En nú leið óðum

að jólum og allir voru að hætta að róa,

en af stað urðum við að komast fyrir

jól, til þess að ná í markaðinn eftir jól-

in. Á Þorláksmessu tókum við á

Húsavík fiskinn frá deginum áður og

nokkrir trillukarlar á Raufarhöfn

höfðu lofað að róa sama dag, ef við

keyptum aflann úr róðrinum, hvort

sem við þyrftum hann eða ekki.

Við komum til Raufarhafnar á að-

fangadag og lá fiskurinn frá deginum

áður á bryggjunni, ísaður í snjó. Við

gengum þegar í að koma honum nið-

ur í lestina en fljótlega kom í ljós að

einhver afgangur yrði. Markús stýn-

maður hafði orð á því að láta hann a

dekkið og henda honum svo þegar við

værum farnir, heldur en að skilja hann

eftir á bryggjunni.

Ég hafði oft komið til Raufarhafn-

ar áður og minntist þess að ég hafði

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88
Blašsķša 89
Blašsķša 89
Blašsķša 90
Blašsķša 90
Blašsķša 91
Blašsķša 91
Blašsķša 92
Blašsķša 92
Blašsķša 93
Blašsķša 93
Blašsķša 94
Blašsķša 94
Blašsķša 95
Blašsķša 95
Blašsķša 96
Blašsķša 96
Blašsķša 97
Blašsķša 97
Blašsķša 98
Blašsķša 98
Blašsķša 99
Blašsķša 99
Blašsķša 100
Blašsķša 100
Blašsķša 101
Blašsķša 101
Blašsķša 102
Blašsķša 102
Blašsķša 103
Blašsķša 103
Blašsķša 104
Blašsķša 104
Blašsķša 105
Blašsķša 105
Blašsķša 106
Blašsķša 106
Blašsķša 107
Blašsķša 107
Blašsķša 108
Blašsķša 108
Blašsķša 109
Blašsķša 109
Blašsķša 110
Blašsķša 110
Blašsķša 111
Blašsķša 111
Blašsķša 112
Blašsķša 112
Blašsķša 113
Blašsķša 113
Blašsķša 114
Blašsķša 114
Blašsķša 115
Blašsķša 115
Blašsķša 116
Blašsķša 116
Blašsķša 117
Blašsķša 117
Blašsķša 118
Blašsķša 118
Blašsķša 119
Blašsķša 119
Blašsķša 120
Blašsķša 120
Blašsķša 121
Blašsķša 121
Blašsķša 122
Blašsķša 122
Blašsķša 123
Blašsķša 123
Blašsķša 124
Blašsķša 124
Blašsķša 125
Blašsķša 125
Blašsķša 126
Blašsķša 126
Blašsķša 127
Blašsķša 127
Blašsķša 128
Blašsķša 128
Blašsķša 129
Blašsķša 129
Blašsķša 130
Blašsķša 130
Blašsķša 131
Blašsķša 131
Blašsķša 132
Blašsķša 132
Blašsķša 133
Blašsķša 133
Blašsķša 134
Blašsķša 134
Blašsķša 135
Blašsķša 135
Blašsķša 136
Blašsķša 136
Blašsķša 137
Blašsķša 137
Blašsķša 138
Blašsķša 138
Blašsķša 139
Blašsķša 139
Blašsķša 140
Blašsķša 140