SJÓMANNADAGSBLADIÐ 111 hæst ber þó sjálfa samræminguna og aukið framboð á hvers konar fræðslu og þjálfun. Mikil fræðsla hefur verið sótt erlendis, en þar höfum við kynnst því hvernig erlendar björgunarsveitir vinna og það hefur styrkt og bætt starf Björgunarskólans. Slysavarnafélagið hefur um langt skeið tekið þátt í al- þjóðlegu samstarfi og á aðild að Al- þjóðasamtökum sjóbjörgunarfélaga og ýmsum öðrum samtökum, norræn- um og evrópskum. Þá hefur félagið átt gott samstarf við bresku strand- gæsluna og er í bandarískum samtök- um, NASAR, sem eru samstarfsvett- vangur um björgunarmál vestra. Þá rekum við fjarskiptakerfið og endurvarpakerfið í samstarfi við Landsbjörg, og er það orðið mjög gott og öflugt, enda verður svo að vera þar sem fjarskiptin eru grunnurinn þegar björgunaraðgerðir eru í gangi. Þótt síminn sé orðinn gott tæki, þá eru honum ákveðin takmörk sett, og þau takmörk má í flestum tilfellum yfir- vinna með fjarskiptakerfi okkar. Þá erum við með sameiginlegt leitar- og björgunarskipulag sem við vinnum eftir Lands- og svæðisstjórn björgunarsveita". Það byggist á því að landinu er skipt upp í 18 svæði og á hverju svæði er ein svæðisstjórn sem sinnir samræmingu á leitar- og björg- unarstarfi á sínu svæði. Taki björgun- araðgerð yfir fleiri en eitt svæði kem- ur Landsstjórn inn í og aðstoðar við samræminguna. Þetta kerfi hefur ver- ið að þróast undanfarin ár og er feng- in af því mikilsverð reynsla og ríkir um það góð sátt en áður en kerfið kom til sögu var stundum um það rætt að björgunaraðilar væru í nokkurs konar kapphlaupi." Þetta er nú alveg úr sögunni, aðstæður í hverju tilviki eru kannaðar og síðan sendur sá mannafli og tækjabúnaður sem nauð- synlegur er til að leysa verkefnið. Þannig eru aðgerðirnar nú orðnar mjög samhæfðar og markvissar." Umferðaröryggisfulltrúi í hverjum landshluta Ég vil líka nefna að við erum í mjög nánu samstarfi við Umferðarráð og má geta um að á síðasta ári var ráðinn sérstakur umferðar-öryggis- fulltrúi á Suðurlandi. Þetta hefur gef- / tengslum við landsþingið sem haldið verður dagana 29. til 31. maí í Sand- gerði, er tlunin að opna söguminjasafn f Garðinum," segir Gunnar. (Ljósm.: Sjómdbl. AM) ið svo góða raun að í ráði er að ráða umferðaröryggisfulltrúa í alla lands- hluta. Þeir munu hefja störf í sumar og munum við þá reyna að taka á um- ferðaröryggi í bæði dreifbýli og þétt- býli ásamt Umferðarráði og leitast við að virkja starfskrafta okkar félags- fólks til þess. Samhliða þessu verður reynt að koma á ákveðnum tengslum til samræmingar við umferðarörygg- isnefndir Umferðarráðs, lögreglu, sveitarstjórnir og almenning á svæð- unum. Eins og við vitum þá hafa mjög alvarleg umferðarslys orðið úti um land sem segja má að verið hafi í öfugu hlutfalli við sjálfan umferðar- þungann og tengjast þvf meir umferð- arhraðanum. Þannig létust 130 manns á tíu ára tímabili í umferðarslysum úti á landi, meðan um 85 manns létust í þéttbýli. Þetta segir okkur að þótt slysin úti á landi séu færri, þá verða þau gjarna alvarlegri. En þar sem ég hef hér rætt um sam- starfsaðila SVFÍ, vil ég bæta því við að hvað fjáröflun snertir höfum við verið í samstarfi við Rauðakross fs- lands, Landsbjörgu og SÁÁ og rekið ásamt þeim spilakassa, sem stundum hafa að vísu hafa verið gagnrýndir. En þótt við á sinn hátt tökum undir þá gagnrýni, þá teljum við að meiri hluti fólks spili í þessum kössum sér til ánægju og jafnframt til þess að styrkja þetta starf. Spilakassarnir gegna óneitanlega meginhlutverki í fjáröflun okkar auk happdrættisins, en eins og ég sagði rennur ágóði af happ- drættinu til reksturs björgunarskip- anna." Ég hef nú drepið á ýmsa þætti sem hæst ber nú á 70 ára afmælinu okkar. Ætlunin er að minnast afmæl- isins á veglegan hátt og verður það gert á landsþingi SVFÍ sem að þessu sinni verður dagana 29.-31. maí í Sandgerði. I tengslum við þingið er ætlunin að opna söguminjasýningu í Garðinum. Þar verður reynt að gera sögu félagsins nokkur skil og mun sýningin verða grunnur að sögusafni félagsins. Hefur fengist undir safnið húsnæði sem er í eigu björgunarsveit- arinnar Ægis í Garði, en þeir félagar fengu þetta húsnæði næstum gefið fyrir um ári síðan. Þar sem svo skemmtilega vill til að Sjómannadagurinn fagnar einnig stórafmæli um þessar mundir vil ég ljúka þessu spjalli með því að senda sjómannasamtökunum og sjómönn- um öllum innilegar árnaðaróskir með þökk fyrir áratuga samstarf, þar sem ekki hefur borið skugga á." AM