SJÓMANNADAGSBLADID 115 henni og er ég í undirbúningsstjórn samtakanna. Þannig erum við komnir í góð sambönd á alþjóðavettvangi. Ég er þeirrar skoðunar að þarna sem á fleiri sviðum í íslensku þjóðfélagi muni upphefð" okkar smábátaeig- enda koma að utan." Mér bregst illa ef þróunin á alþjóðavettvangi á ekki eftir að snúa talsvert upp á þá fisk- veiðistjórnun sem við erum að brölta með í dag. Kvótakerfið mun ekki standa til eilífðar. Sú umræða sem nú fer fram í öðrum löndum, og verður öflugri með hverjum deginum, snýst um að leggja beri meiri áherslu á strandveiðar og veiðar með léttum veiðarfærum, samfara framboði á eins ferskum fiski og völ er á. Þetta kom vel fram í umræðuþætti sem fram fór í sjónvarpi fyrir nokkru: Þar opinber- uðu ýmsir sérfróðir Bandarfkjamenn þá skoðun sína að framtíðin liggi í sem ferskustum fiski, meðan íslend- ingarnir við hliðina á þeim töldu að hún fælist í frystivörunum. Mér sem fleirum segir svo hugur að fyrrnefnda sjónarmiðið verði alls staðar ofan á um síðir og það mun verða okkur strandveiðmönnum í hag." Hér með þökkum við Arthuri Bogasyni fyrir fróðlegt spjall, en sú framtíðarsýn sem hann lýsti hér í nið- urlagi viðtalsins ætti að verða mörg- um gott umhugsunarefni. AM Sendum öllum ísíenskum . / sjomonnum árnaðarósfur a Rátíðisdegi þeirra ATLAS HF BORGARTUNI 24 Jírafnistufieimilin í ^Reykjavík og Jíafnarfirði senda sjómönnum árnaðarósíar á dátíðisdegi ^eirra Hrafnistuheimilin í Reykjavík og Hafnarfirði