Blanda - 01.01.1923, Blaðsíða 198
192
þessar endurminningar skrifaðar i þeim tilgangi að
særa nokkurn, og vona eg, að ættingjar þessara manna,
ef nokkrir eru, taki það heldur ekki illa upp.
Jón Gizursson két maður, sonur Gizurar vaktara
Magnússonar úr Engey, Helgasonar. Er þetta gömul
Reykjavíkurætt, ættuð úr Effersey. Gizur bjó í Hóla-
koti, og þar bjuggu afkomendur haus þangað til kot-
ið var rifið fyrir fáum árum. Jón þessi var fábjáni frá
fæðingu; varð aldrei almennilega talandi, og kunni
ekki að telja leugur en til 5. Hann var fermdur um
tvitugt eptir sérstöku biskupsleyfi upp á fáeinar greinir
í kverinu.
JÞegar gamli (elzti) Bernhöft bakari settist hér að
um 1835, varð Jón vinnumaður hjá honum, og var þar
alla sína ævi. Sýnir það, að hann hefir verið trúr og
dyggur þjónn, þrátt fyrir takmörkun sina.
Einu sinni, þegar Jón var ungur, átti hann að lóga
ketti. Hann ætlaði að hengja köttinn, en það lánaðist
ekki betur en svo, að kötturinn slapp úr snörunni-
Eptir það var hann altaf kallaður „kis, kis“. Hvar
sem hann gekk á götu, þá kvað við á eptir honurn
„kis, kis“, eða það var mjálmað, Þótt Jón heyrði
þetta svo að segja daglega, og hefði því átt að vera
orðinn þessu vanur, þá brást hann ákaílega reiður við
i hvert sinn. Þegar hann kom niður fyrir lækjarbruna
mátti sjá hann hendast áfram, eða til hliðar, til þes9
að ná í strákana, sem mjálmuðu á eptir honum. Og
ekki tók betra við, er hann kom inn í einhverja búð-
ina, því þá var mjálmað bæði fyrir innan og utan
búðarborðið; hann æddi þá eptir búðargólfinu, þv^
hann stóð alveg varnarlaus gagnvart þeim, sem voru
fyrir innan borðið, búðarþjónunum.
Það hefði þvi mátt ætla, að Jón hætti ser ekk
nema í nauðsyn út á göturnar, þar sem hann átti svo
mörgum óvinum að mæta, en því fór fjarri. Jón fér