Blanda - 01.01.1923, Blaðsíða 350
342
lágum til þeaa birti, án matar, því þar var ekki íhug-
að, að svona mundi tiltakast. Náði eg því í engan
mat; sama var að segja um I>órð, hann fókk engan
mat, heldur hefur húsmóðirin víst ekki hugsað, að
svona mundi íara, og kæmist hún heim um kveldið,
skyldi hún gefa hjúunum þeirra ákvarðaða skerf, en
var óvön að láta þau leifa matinn sinn. Vigfús bróðir
kom um nóttina og lagðist fyrir, og var þá svefuóra
mjög, og skeytti lítið um okkar þaríir. Pórum við til
okkar starfa, og komum ekki heim íyr en allt var
fundið. Stóð það heima, að þá voru ungu hjónin og
foreldrar mínir nýkomnir heim; gaf hún mór skonroks-
köku, og var það hið seinasta, eg naut af veizlu þeirri
(!!). Eu Þórður bað gamla húsbónda sinn að gefa
þeim samlagsbræðrura sinum, nefnil. vinnumönnum hans,
einn frjálsan dag að gleðja sig á. ftaf hann þeim einn
liminn af áðurtöldu nauti, 6 pnnd af skonroki og 5
potta af brennivíni. Átti þetta að vera veizla handa
þeim, og sögðu margir, húu mundi hafa verið ánægju-
meiri þeirri á undan gekk, og hverrar áður er getið.
Þórður kom heim með konu sína, og var á orði, að
húsmóðir þeirra mundi ei hafa gefið hjúum sínum að
smakka neitt úr veizlunni, en liklega hefur hún gefið
þeira brauðköku. Þórður byrjaði strax störf sín, og var
ætíð eitthvað að láta starfa úti við, því mörg voru baust-
verk á hvo stóru heimili, því þó mörg væru búin, var tals-
vert eptir, en (hann) var i hverju verki með vinnumönnum
sínum, og leit svo út, sem haun f'orðaðist bæinn. Gekk
svo til þess inn var sezt, og tók þá við hampvinnan.
Þetta varaði til vertíðar, ásamt skipsútbúnaði og neta-
gerð, því hann ætlaði að verða formaður fyrir skipi
og hafa til helminga. Gekk allt þetta með ákafa mikl-
um.
Nú víkur sögunni að Skarðskoti. Þar stóð bu föður
mins með sömu ástæðum, og þar hafði lengi verið.