36i unarvissu, aS hún hafi veriS myrt á eitri af maddömu Holm, meö tilstyrk Marenar Jespersdótt- ur, og aS þau jómfrú Holm og amtmaöur hafi a'S minnsta kosti vitaS um glæpinn og verið honum samþykk, ef þau þá ekki beinlinis hafa veriö frum- kvöölar hans eSa þátttakendur í honum. Leiðrétting. Frá Indriða Helgasyni kaupmanni á Akureyri. í Blöndu, V. bindi, bls. 92, í samtíningi eftir séra Benedikt Þórðarson í Selárdal, er sögn um séra Grím Bessason, er þá var prestur á Eiðum. Vísan í sögunni er ekki rétt. Þegar biskup hafði bent séra Grími á, að næg yrkisefni mundu finnast í guð- spjöllunum, þegir prestur um stund, og segir síðan: Undarlegur var andskotinn, er hann fór í svínstötrin. Ofan fyrir bakkann öllu saman stakk 'ann, helvítis hundurinn. Gat yður nú ekki dottiS neitt fallegra yrkisefni í hug?" mælti biskup meÖ stillingu. Ó-jú," svarar prestur, þegir stutta stund og seg- ir sí'Öan: ÞaS mætti til dæmis byrja sálm meÖ þessu erindi: Þegar sá ríki rumskaÖist í reyknum þarna niðri, drafaÖi tungan dauða-þyrst í djöflastofunni miðri." Mun talið, að með seinni vísunni væri hann að sneiða að biskupi. Biskup kvað þetta mundu verða þarflítill sálm- ur, og bað Grím hætta.