12 GRIPLA sem ekki sé hægt að herða hann vegna veðurs, en verslunarfélagið vilji ekki kaupa saltfisk og banni að selja hann öðrum. Hinsvegar sé hægt að selja saltfisk með góðum hagnaði til Frakklands, væri hann verkaður samkvæmt óskum manna þar í landi; eins væri hægt að veiða mikið af löngu og selja til Englands. Þessar hugmyndir koma ekki fram í Con- signatio, en í bréfi til Worms 1648 talar Gísli um áform sín að koma upp fátækrahælum og segist ætla að leggja þeim til fiskiskútur.18 Hins- vegar er þar ekki minnst á fisksölu, enda erfitt um vik vegna einokunar danska verslunarfélagsins. (7) í sjötta lið er rætt um tekjur af fuglaveiðum og þá einkum um að selja mætti álftafjaðrir úr landi; bent er á að Frísir hafi miklar tekjur af slíku. Um fuglaveiðar er rætt í Consignatio, 4. kafla, en álftafjaðrir koma þar ekki við sögu. (8) Bréfinu lýkur með tilmælum Gísla um að hann yrði skipaður yfirmaður allra rannsókna og nýjunga á íslandi, en þessi tilmæli eru endurtekin með nánari greinargerð í Consignatio, 9. og 11. kafla. Þetta var vitaskuld eitt mesta áhugamál Gísla, eins og sést af síðari skrifum hans. Sama vor og bréf Tanches var skrifað hefur Gísli rætt áform sín við Óla Worm, þegar hann kom til Kaupmannahafnar á heimleiðinni, og eftir heimkomuna sótti hann samsumars um einkaleyfi til brennisteinstekju á íslandi til handa sér og Magnúsi föður sínum. Leyfið var veitt, og kann að vera að einmitt bréfið frá Tanche hafi átt einhvern þátt í því, enda þótt Worm þakki sér það að verulegu leyti.19 Þegar leyfið var fengið, færði Gísli sig undir eins heldur betur upp á skaftið með ritgerð sinni, Consignatio, sem hann sendi utan 1647. Bréfið sem hér fer á eftir er prentað stafrétt; fáein augljós pennaglöp eru leiðrétt, einkum er stöfum sem fallið hafa niður bætt við í oddklof- um. Durchleiichtigster grossmachtigster König, gnadigster Herr. Weil die gelegenheit es so hat gefiiget, dass E. Mayt. Jch vnterth(e- nig)st in einem aussfiihrlichen schreiben ovverture von ezlichen vor- schlágen und mittelen habe gethan, so mir an die hand gegeben worden, dadurch die Commercien in E. M. Reichen in besser aufnehmen, ver- 18 Sjá Bibl. Arnam. VII 161, sbr. Consignatio, 6. kafla. 19 Sjá Bibl. Arnam. VII 155.