32 GRIPLA er vitnað til Encyclopædia Britannica frá 1885, þar sem segir 'Stone- ware jug or 'greybeard'; Flemish ware, early 17th century'. í Webster 1966 er graybeard m. a. þýtt: 'BELLARMINE', en undir því orði segir: '[after Roberto Cardinal Bellarmine (Bellarmino) f 1621. Ital. prelate whom such jugs orig. caricatured]: a narrow-necked large- bellied stoneware drinking jug typically adorned with the figure of a bearded man'. í NED segir svo: 'BELLARMINE . . . Obs. exc. Hist. A large glazed drinking-jug with capacious belly and narrow neck, originally designed, by the Pro- testant party in the Netherlands, as a burlesque likeness of their great opponent, Cardinal Bellarmine. (See Chambers Bk of Days I, 371.)' Elzta dæmi er frá 1719. Þá má geta þess, að fyrr greindir brúsar eru á ensku einnig kallaðir longbeard, sbr. Webster 1966, þar sem það orð er m. a. þýtt 'bellar- mine'. Þessar ensk-bandarísku heimildir koma í öllum aðalatriðum heim við elztu íslenzku heimildirnar um brúsa (skeggja, skeggkarl, skeggbrúsa og leirkarl). Samkvæmt þeim er brúsi (greybeard, longbeard, bellar- mine): 1) gerður úr leir, 2) með mynd af skeggjuðum manni, sérstaklega Robert Frants Romulus Bellarmin, en kunnugt er, að hann var sendur til Niðurlanda (Louvain) til að hamla á móti mótmælendatrú, enda hálærður jesúíti. Ekkert er því til fyrirstöðu, að gerðar hafi verið skop- myndir af fleiri mönnum, sem illa voru þokkaðir á Niðurlöndum, svo sem hertoganum af Alba, 3) ílát undir áfengi, 4) belgvíður, en hálsmjór. Um síðasta atriðið er erfitt að ákveða af íslenzku heimildunum. Svipuð orð um sama fyrirbæri má einnig finna í þýzku: 'GRAU- BART ... 6) fiir wassergefdsz mit bdrtiger maske: es sind (von hollánd steinzeug a. d. ende d. 16. jhs) namentlich viele exemplare von wasser- kriigen erhalten, die vorn unten dem ausgusz eine bartige maske tragen und daher graubarte oder bartmánner genannt wurden'. Þetta er fengið úr Grimmsorðabók (undir Graubart), en heimild orðabókarinnar er Kerl, Handbuch d. tonwarenindustrie (31907) 11. I ofan greindri til- vitnun kemur einnig fram, að framan greindir brúsar voru nefndir Bart- manner, en Grimm tilgreinir ekki þá merkingu undir Bartmann. Hins vegar styðst það einnig við Encyclopædia Britannica, eins og síðar verður sýnt.