FJANDAFÆLA GÍSLA JÓNSSONAR LÆRÐA 45 vmm þetta fiós salugj sera Gýssur Gamalielz son, þá eg var a Thorffu- stódum efri nu firir 9 árum, Og eg villdi fiossinz trodning eckj leingur 30 lýda, til sanninda merkis hier vmm skriffa eg mitt naffn hier vndir, ad Melracka dal i Wijdirzdal, þann 22 Januarij dag, Anno 1657. Gijsli Jonsson m: Eh Þetta ad vera Rietta Copiu eptir Originalnum vottum vid vndirskriff- 35 adir, Ad Stadarbacka J Midfyrdj, þann 26 Julij, Anno 1658. Biarni Arngrýmsson Sigurdur Jonsson Egh med Eh. Ingjaldur Illugason sem um er rætt í bréfinu var lögréttumaöur og hafði umboð Miðfjarðarjarða.13 Hann lést 26. maí 1643, og hefur ágreiningur Jóns Jónssonar á Torfustöðum neðri og Ásgríms ívarssonar í efra bænum risið fyrir þann tíma. Þá var Gísli kominn í Miðfjörð, en ekki kemur fram á hvaða bæ hann var. (Síðar segir Jón frá Grunnavík að Gísli hafi búið á Króksstöðum í Miðfirði.) Árið 1648 eða um það bil hefur Gísli verið á Torfustöðum efri í Miðfirði, en síðar hefur hann farið í Melrakkadal í Víðidal, þar sem hann var þegar bréfið var skrifað 1657. í latínuriti Páls lögmanns Vídalíns (1667-1727), Recensus poetarum et scriptorum Islandorum hujus et superioris seculi, hefur verið grein um Gísla í Melrakkadal. Rit Páls er ekki til í upphaflegri mynd, en hefur varðveist í ágripi Hálfdanar Einarssonar skólameistara og í íslenskri þýðingu séra Þorsteins Péturssonar á Staðarbakka. Hálfdan hefur tekið greinina um Gísla upp í ágripið, lítið stytta að því er virðist, en þó er smávegis umfram í þýðingu séra Þorsteins sem líklegt er að Hálfdan hafi sleppt. Upphafi greinarinnar snarar Hálfdan á íslensku og þjappar efninu saman, svo að frásögnin af uppvexti Gísla verður hóti rækilegri í þýðingu séra Þorsteins. Er þar sagt að hann væri almúgakyns, og var hann haldinn hafa lært ungur fjölkynngi hjá föður sínum, en farið öðru vísi með, því að faðir hans gerði engum mein og hélt heimuglega hjá sér sinni konst, en Gísli tók með aldrinum að verða ófrægur og óþekkur öllum góðum mönnúm og jafnvel föður sínum fyrir ómennsku og galdra. Nítján vetra gamall fór Gísli út í Grímsey að forða sér frá sví- virðu, segir enn eftir riti Páls, og var hann þar til 36 ára aldurs. Þegar 13 Einar Bjarnason, Lögréttumannatal, bls. 251-2.