l.mynd. Altaristafla frá Berufjarðarkirkju (Þjms. 4527). Frá seinni hluta 17. aldar. Ljósmynd: Kristján Pétur Guðnason. Altar piece from the church at Berufjörður, eastern Iceland (National Museum of Iceland, lnv. No. 4527). Sec- ond half of 17th century. ELSA E. GUÐJÓNSSON SKYLDLEIKI ERLENDRA PRENTMYNDA VIÐ NOKKRAR ÍSLENSKAR HELGIMYNDIR í Þjóðminjasafni íslands er máluð altaristafla (Þjms. 4527) frá seinni hluta 17. aldar með mynd Ólafs konungs helga (1. mynd). Er taflan úr Berufjarðarkirkju, gefin henni af Jóni sýslumanni Þorlákssyni biskups Skúlasonar og Sesselju Hallgrímsdóttur. Tafla þessi er merkileg meðal annars fyrir það að Ólafsmyndin er greinilega náskyld tréristu af sama dýrlingi í Breviarium Nidrosiense, prentuðu í París 1519; er myndin þar tvíprentuð, annað skiptið sem formynd (2. mynd).1 Mun dr. Jakob Jónsson fyrstur manna hafa komið auga á þennan skyldleika og skrifaði um myndirnar í norskt tímarit fyrir um tuttugu árum.2