74 GRIPLA 4. mynd. Refilsaumað altarisklæði frá Draflastöðum í Fnjóskadal (Þjms. 3924). Frá 2. fjórðungi 16. aldar. Ljósmynd: Gísli Gestsson. Altar frontal from the church at Draflastaðir, northern lceland (National Museum of lceland, Inv. No. 3924). Second quarter of 16th century. Að fengnum þessum athyglisverðu upplýsingum, skoðaði ég umrædd- ar tvær myndir í handritinu AM 160 4to á nýjan leik og með breyttu viðhorfi. Flaug mér þá skyndilega í hug að á annarri þeirra væri mynd Ólafs helga sú hin sama og á altaristöflunni frá Berufirði (3. mynd). Við samanburð reyndist svo vera, en raunar var handritsmyndin, þ. e. Ólafsmyndin sjálf án umgerðar, miklum mun líkari tréristunni en mál- verkinu. Getur ekki farið á milli mála að handritsmyndin sé dregin upp eftir Breviarium Nidrosiense eða sams konar mynd og þar er að finna.