78 GRIPLA 7. mynd. Mynd af heilagri þrenningu og táknum guðspjalla- mannanna í Missale Lundense, prentuðu í París 1514. Ljósmynd: Det kongelige bibliotek, K0benhavn. The Holy Trinity and symbols of the four Evangelists. lllustration in Missale Lundense, printed in Paris 1514. bygd, XXII (Oslo, 1970), bls. 73. í annarri grein eftir sama höfund, 'En komplett treenighet fra Island,' Den iconographiske post, 6: 2-3: 25-35, 1975, segir frá sér- stæðri gerð af þrenningarmynd á þessu horni, sem helst virðist mega rekja til mynda í bókum prentuðum í París á árunum frá um 1500 til 1524, þeirra á meðal Missale Lundense frá 1514 (7. mynd). Á drykkjarhorninu er ennfremur, að því er segir á bls. 34 í sömu heimild, bekkur með mannamyndum náskyldum fjórum myndum á einni blaðsíðu í Breviarium Nidrosiense. Annað dæmið er silfurkaleikur frá Miklabæ í Blönduhlíð, nú í Þjóðminjasafni Islands (Þjms. 6168 a; 8. mynd), sem vegna lögunar sinnar hefur verið talinn frá um 1300, sbr. Björn Th. Björnsson, íslenzkt gullsmíði (Rvk, 1954), bls. 23, eða varla yngri en frá fyrri hluta 14. aldar, sbr. Matthías Þórðarson, 'Málmsmíði fyrr á tímum,' Iðnsaga íslands, II (Rvk, 1943), bls. 294. Á kaleiknum er hnöttóttur hnúður grafinn merkjum guðspjallamannanna (9. mynd). Eru merkin svo lík að gerð táknum guðspjallamannanna í hornreitum hinna fyrrgreindu frönsku þrenn- ingarmynda (sbr. 7. mynd), að vart fer milli mála hvert fyrirmyndirnar voru sóttar.