80 GRIPLA 10. mynd. Refilsaumað altarisklæði frá óþekktri kirkju íslenzkri, nú í Rijks- museum Twenthe, Enschede, Hollandi. Frá seinni hluta 16. aldar (eða um 1600?). Ljósmynd: H. J. Wennink. Altar frontal from an unknown church in Iceland, now in Rijksmuseum Twenthe, Enschede, Holland. Second half of 16th century (or ca. 1600?). Þriðja dæmið er refilsaumað altarisklæði, nú í Rijksmuseum Twenthe, Enschede, Hollandi. Ég hef áður, í greininni 'íslenzkur dýrgripur í hollenzku safni,' Andvari (Reykjavík, 1962), bls. 127-138, bent á (bls. 130) að klæðið gæti varla verið saumað fyrr en um eða eftir 1500, en síðari athuganir mínar benda til að klæðið sé frá seinni hluta 16. aldar eða jafnvel frá um 1600; verða þeim athugunum gerð skil á öðrum vettvangi. Hins vegar virðist einsætt, ef borin eru saman tákn guð- spjallamannanna í hornreitum klæðisins (10. mynd) og á mynd í Missale Lundense (11. mynd) ¦ þó svo að tákn Markúsar og Lúkasar séu spegluð á klæðinu að táknin þar hljóta að vera dregin upp með hliðsjón af prentuðu myndinni eða mynd náskyldri henni.