FIMM HUNDRUÐ ÁRA DÓMUR 105 bréfsins 1476. Athugun okkar var bundin við textafræðilega og skjal- fræðilega hlið málsins, og var henni skilað í janúar 1974. Formeinkenni íslenskra miðaldabréfa hafa ekki verið könnuð svo að nokkru nemi, og þess vegna birtum við hér þessa takmörkuðu athugun okkar óbreytta í von um að hún kunni að ýta undir rækilegri og víð- tækari rannsóknir á skipan og orðfæri bréfanna. Slíkar rannsóknir gætu m. a. orðið til þess að auðveldara yrði en áður að greina falsaða texta frá ófölsuðum, en auk þess kynnu þær að varpa ljósi á leiðir erlendra formáhrifa og hugsanlega staðbundin eða einstaklingsbundin afbrigði hér innan lands. Þekking á slíkum afbrigðum gæti í sumum tilvikum gefið vísbendingu um það undan hverra rótum tilteknar bréfagerðir væru runnar umfram það sem ráða má af sjálfu efni bréfanna. Á undan greinargerð okkar birtum við hér texta þeirrar uppskriftar sem nefnd er A, og er hann stafréttur eftir föngum, en skriftin er sums staðar svo máð að vafi getur leikið á broddum og nefhljóðaböndum og á stöku stað hefur pappírinn rifnað. I greinargerðinni er tilvísun til lína í þessari prentun bætt við í hornklofum á eftir tilvísun til lína í Forn- bréfasafni. Neðanmáls við greinargerðina eru þrjár síðari viðbætur. TEXTI Dómur umm Holltamanna og Landmanna Afriett. Þad giörwn vier: Oddur Asmundzson/ 0rnólfr Oddsson/ Biórn Jóns- 3 son/ Þorsteirn Þordarson/ Sigurdur Eireksson/ og Sigurdur Haflida- son/ Gódum mónnum kun(n)ugt/ med þeszu voru opnu brefi: Anno Domini 1476. þridiudaginn nærstann eptir Jónsmeszu Babtista/ ad 6 Skardi á Landi/ á þíngstad riettumm/ vórum vier i Dóm nefndir/ af Þorsteini Pálssyni/ er þá hafdi Syslu og ummbod af Ellendi Ellendssyni i Rángar þíngi/ ad meta og skoda umm afriett þanrc er heita Þiótz ár 9 Túngur/ og liggur fyrir Landmanna Repp/ millumm Tún ár/ og Spreíngi-Sands/ hvort þad væri eígn edr Almenmngur edur afriettr þe/rra manna er í Landman«a Repp búa/ og þar veittu akiæru umm. 12 Var og svarid tyrir osz af tveimr mönnum/ Tomase Illugasyni og Sig- urdi 0gmundssyni/ ad þeszi afriettur þiótzar Túngur hafi verid h[a]fdr 13 afréttur] + hafi verid, en strikað út.