110 GRIPLA VI nr. 78A tortryggilegt, því að orðalag þess er ekki síður algengt en hitt: Af 15 frumbréfum frá árinu 1476 með sams konar upphafi hafa 8 kunnugt, en 7 viturlegt, og 7 hafa opnu bréji, en 8 bréfi. 2) Tíma- og staðsetning er þannig í DI VI nr. 78A í framhaldi af bréfsupphafinu: anno domini 1476 þriðjudaginn nstan efter Jóns messu baptista að Skarði á Landi á þingstað réttum. Sama form er á DI V nr. 402: anno domini m° cd° lx° quinto miðvikudag næstan fyrir Cesselíu messu í Skarði í Landmannahrepp á þingstað réttum. Hér er rétt að víkja nánar að nokkrum atriðum: a) Venja er í bréfum, að í upphafi tíma- og staðsetningar sé samtengingin að, enda á hún að vera þar að réttu máli (Það gerum vér . . . kunnugt . . . að . . . vorum vér í dóm nefndir . . .), en að er stundum sleppt, og svo er gert í báðum þess- um Skarðsbréfum og þrem öðrum rangæskum bréfum frá seinni hluta 15. aldar, DI V nr. 410 (í Klofa í Landmannahrepp 1466), DI VI nr. 271 (á Keldum í Áverjahrepp 1480) og DI VII nr. 368 (á Eystrum- Völlum á Landi 1497). b) anno domini er með algengasta orðalagi á undan ártali. Algengara í frumbréfum frá 8. tugi 15. aldar er þó orða- lagið þá (er) liðið var frá hingaðburði vors herra Jesu Christi eða afbrigði af því, en öll 6 frumbréf úr Rangárvallasýslu frá þessum ára- tugi hafa orðalagið anno domini. c) Ártöl í bréfum frá 15. öld eru einlægt tilgreind með rómverskum tölum eða með töluorðum latneskum eða íslenskum, en algengt er í uppskriftum frá síðari öldum að snúa rómverskum tölum í arabískar. d) Dagsetningin er algjörlega í sam- ræmi við siðvenju greinds tíma. e) að Skarði á Landi ] í Skarði í Landmannahrepp : Eina frumbréfið frá seinni hluta 15. aldar auk DI V nr. 402, sem nefnir Skarð (DI V nr. 186), hefur einnig síðarnefnda orðalagið. Vera má að að sé villa í uppskrift, en á Landi á sér hlið- stæður á þessum tíma, t. a. m. í DI V nr. 139 (1457), í Klofa á Landi í Landmannahrepp. f) í báðum bréfunum er á þingstað réttum bætt við staðarákvörðun, eins og algengt er í bréfum frá þessum tíma, t. d. DI V nr. 381 (1464) og nr. 460 (1468). II B Ef litið er á frávik í formi bréfanna DI VI nr. 78A og DI V nr. 402 að svo miklu leyti sem það er sambærilegt, má sums staðar benda á hlið- stæður við orðalag fyrrnefnda bréfsins í öðrum bréfum frá svipuðum tíma: