FIMM HUNDRUÐ ÁRA DÓMUR 111 1) 7 [6] vorum vér í dóm nefndir . . .: Hér hefur DI V nr. 402 til nefndir í stað í dóm nefndir, en orðalag DI VI nr. 78A er mjög algengt í frumbréfum, sjá t. d. DI V nr. 575, nr. 597, nr. 602, nr. 623, nr. 629, nr. 654, nr. 670 og nr. 689 frá árunum 1471-75. 2) 9 [8] meta og skoða]dma (DI V nr. 402): Síðara orðalagið er langalgengast, og orðalagið meta og skoða virðist ekki koma fyrir í dómsbréfum sem prentuð eru í DI V, en hins vegar skoða og dma í DI V nr. 670, frumbréfi frá 1474.2 3) 20-21 [16-17] Því eftir þeim eiði og svo prófuðu máli sem fyrr skrifað er dmdum vér . . .: Til þessa svarar aðeins Því dæmdum vér í DI V nr. 402, sem er mjög algengt. Algjöra hliðstæðu orðalagsins í DI VI nr. 78A höfum við ekki fundið í DI V, en hliðstæður að nokkru leyti eru t. a. m. í DI V nr. 122, en að eiðinum unnum dmdum vér . . . (1456, AM apogr.), nr. 460, Því fyrir áður skrifaðar greinir dæmdum vér . . . að svo prófuðu . . . (1468, transskr. frá sama ári), nr. 654, Því eftir þessum öllum gögnum og vitnum, hefðum og prófum, sem hér hefir verið svarið fyrir oss . . . dmdum vér . . . (frbr. 1474), og nr. 698, Þvi að heilags anda náð til kallaðri að svo prófuðu og fyrir mig komnu segi eg . . . (frbr. 1475). 4) Innsiglunarformálinn 34-35 [29-30] (Og) til sanninda hér um setjum vér fyrrnefndir dómsmenn vor innsigli fyrir þetta dómsbréf er frábrugðinn í DI V nr. 402, og formið þar (þar sem tekið er fram um innsiglun dómnefnanda), eða afbrigði af því, mun vera algengara um þetta leyti, a. m. k. í dómum sem sýslumenn eða lögmenn hafa nefnt í. Þó eru hliðstæður við texta DI VI nr. 78A t. d. í DI V nr. 381 (frbr. 1464), nr. 460 (1468, transskr. frá sama ári), VI nr. 134 (1478, AM apogr.) og nr. 417 (1483, transskr. frá næsta ári). í þrem fyrstnefndu dómunum eru dómsmenn nefndir af sýslumanni og í þeim síðastnefnda af hirðstjóra. Hliðstæður eru í fleiri dómum leikmanna frá þessu skeiði, sem lakar eru varðveittir, og auk þess í prestadómum. Loks má nefna að innsiglunarformáli DI VI nr. 78A á sér ótal hliðstæður í frumritum vitnisburða um jarðakaup og fleira, en í slíkum bréfum er þó að sjálf- sögðu menn eða prestar í stað dómsmenn og bréf í stað dómsbréf, eins og stundum í dómsbréfunum sjálfum. 2 Athyglisvert er að dómnefnandi í þessu bréfi er Oddur lögmaður Ásmundsson, sem er nefndur fyrstur dómsmanna í DI VI nr. 78A.