112 GRIPLA 5) í staðar og tímasetningu bréfritunar vantar sjálfa dagsetninguna í DI VI nr. 78A, og hefur fallið niður annað hvort í uppskrift eða jafnvel frumriti 1) tilgreining á ritunardegi, 2) tilgreining á hve mörgum dögum síðar en fyrr segir dómsbréfið var skrifað eða 3) degi og á undan ári, ef bréfið hefur verið skrifað sama dag og dómurinn gekk. II C Ýmislegt fleira í orðalagi bréfsins DI VI nr. 78A á sér samsvörun í öðrum dómsbréfum frá svipuðum tíma: 1) 14 [12] Var og svarið fyrir oss af tveimur mönnum á sér hlið- stæður í ýmsum bréfum, t. a. m. DI V nr. 114 (frbr. 1454), nr. 319 (frbr. 1462), nr. 372 (frbr. 1464), nr. 654 (frbr. 1474) og nr. 689 (frbr. 1475). í engu þessara bréfa stendur þó mönnum heldur prestum, vott- um eða skilríkum vottum. 2) Orðasambandið hafa og halda, sem kemur fyrir í 16. [13.-14.] og 22. [18.] 1., er einnig að finna í mörgum frumbréfum frá 7. og 8. tugi 15. aldar, t. a. m. DI V nr. 319, nr. 602, nr. 604 og nr. 654 (1462- 1474), og oftar en einu sinni í sumum þeirra. 3) Orðalagið 23 [19] sem eru og verið hafa til er tortryggilegt og kynni að vera afbakað. En ef þarna ætti að standa vera og verið hafa væri það í samræmi við dómsúrskurði í DI V nr. 319, .. . dmdum vér fyrrnefndir prestar títtnefnda Drangey ... vera og verið hafa óbrigðilega eign . . . Hólakirkju . . . (frbr. 1462), og nr. 654, . . . dmdum vér fyrr- skrifaðir 12 prestar þráttnefndan teig eign jarðarinnar í Hólum vera og verið hafa . . . (frbr. 1474). II D Á tveimur stöðum í bréfinu virðist vera um að ræða bergmál frá orða- lagi Jónsbókar: 1) 11 [10] . . . hvort það væri eign eður almenningur eður afréttur . . . : Sbr. Landsleigubálk, kap. 52. 2) 24-25 [20-21] austur í fjallgarð svo langt sem vötn renna til og frá héraða á millum : Sbr. Landsbrigðabálk, kap. 6.